Ríflega 30 styrkir til doktorsnema við HÍ

Rannsóknir sem snerta áhrif gervigreindar á stjórnun vinnustaða, neyslu barnamatar og áhrif þess á örveruflóru í meltingarfærum barna, vinnukonur í þéttbýli á fyrri hluta 20. aldar, kynjuð samskipti á vettvangi skyldunáms og bætta stjórnun vatnsauðlinda í lágtekjuríkjum í Afríku eru meðal þeirra sem hljóta styrk úr Doktorsstyrkjasjóði HÍ í ár. Alls voru veittir 32 styrkir til doktorsnema á öllum fimm fræðasviðum skólans.
Alls bárust stjórn Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands, sem annast úthlutun styrkjanna, 181 umsókn um styrki að þessu sinni og eru þær skýrt vitni um þá grósku og þann metnað sem er í rannsóknastarfi skólans um þessar mundir. Mikil samkeppni var um styrkina og áttu stjórn og matsaðilar því erfitt verk fyrir höndum.
Undir Doktorsstyrkjasjóð HÍ heyra Rannsóknasjóður Háskóla Íslands og Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands auk þess sem ýmsir aðilar og minni sjóðir veita árlega styrki til doktorsnema. Alls voru veittir 18 styrkir úr Rannsóknasjóði og 10 úr Háskólasjóði Eimskipafélagsins að þessu sinni en auk þess voru tveir styrkir veittir frá Vísindagörðum Háskóla Íslands, einn frá Veðurstofu Íslands og einn frá Utanríkisráðuneytinu.
Yfirlit yfir styrkt verkefni má sjá á vef Doktorsstyrkjasjóðs HÍ.
Háskóli Íslands óskar styrkþegum og leiðbeinendum þeirra innilega til hamingju með styrkina.
