Áríðandi skilaboð vegna netárásar á Canvas

Meðfylgjandi tilkynning var send á nemendur og kennara í Háskóla Íslands í morgun, 8. maí, vegna annars öryggisatviks hjá þjónustuaðila Canvas.
„Kæru nemendur og kennarar,
Seint í gærkvöldi, þann 7. maí, varð annað alvarlegt öryggisatvik hjá þjónustuaðila Canvas, Instructure. Samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðilanum var námsumsjónarkerfið tekið tímabundið úr notkun vegna atviksins á meðan unnið var að því að stöðva óheimilan aðgang.
Atvikið beinist ekki sérstaklega að Háskóla Íslands né innri kerfum skólans heldur að alþjóðlegri þjónustu Canvas sem er notuð af fjölmörgum háskólum víða um heim.
Samkvæmt upplýsingum frá Instructure breytti óviðkomandi aðili efni á síðum sem birtust hluta notenda. Kerfið var sett í viðhaldsham til að tryggja öryggi þess og er nú aftur komið í eðlilega virkni. Að sögn þjónustuaðila eru ekki vísbendingar um að aðgangur hafi fengist að notendareikningum, lykilorðum eða að gögn hafi verið tekin ólöglega úr kerfinu í þessari árás.
Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þessi truflun kemur á versta mögulega tíma, í miðri prófatörn, og hefur haft verulega neikvæð áhrif á prófundirbúning margra.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið og þökkum ykkur fyrir skilning og ótrúlega þolinmæði við þessar aðstæður.
Sem varúðarráðstöfun hvetjum við nemendur og kennara til að prenta út mikilvægt efni sem pdf (print as pdf) þannig að það sé aðgengilegt óháð Canvas.
Þetta á meðal annars við um:
- efni til próflesturs
- verkefni og skil
- önnur gögn sem skipta máli núna í lok misseris
Við mælum með að forðast að hlaða efni niður beint á eigin tölvubúnað úr Canvas að svo stöddu. Upplýsingar um hvernig nemendur geta hlaðið efni niður er á forsíðu Canvas, Háskóla Íslands, á Canvas.hi.is
Mikilvægt er að árétta að nemendakerfi Háskóla Íslands (Ugla) er aðskilið Canvas og því eru kennitölur, lokaeinkunnir og önnur slík gögn ekki hluti af þessu öryggisatviki.
Við fylgjumst áfram náið með þróun mála í samráði við þjónustuaðila og munum upplýsa ykkur án tafar ef nýjar upplýsingar berast.
Við ítrekum að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að lok vormisseris gangi sem best fyrir sig þrátt fyrir þessar flóknu aðstæður.
Fyrir hönd Háskóla Íslands
Upplýsingaöryggisstjóri“
