Skip to main content
24. apríl 2026

Ráðstefna LED Nordic um hönnun skólabygginga

Frá vinstri: Jennifer Charteris, Colin Campbell, Gerður Magnúsdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Ida Sederlund, Torfi Hjartarson, Daníel Benediktsson, Tiina-Maria Mäkelä, Markku Lang, Raija Kattilakoski, Sara Lehtonen, Bodil Hovaldt Bøjer, Þórdís Eik Friðþjófsdóttir, Palmyre Pierroux og Siv Marit Stavem. MYND/Kristinn Ingvarsson

Morgunráðstefna á vegum norræna rannsóknar- og þróunarverkefnisins LED Nordic - Impact of Learning Environment Design on Teaching, Learning, and Wellbeing: A Nordic Perspective var haldin í Eddu og streymi miðvikudaginn 15. apríl 2026. Hátt í 200 manns víða að úr heiminum voru skráð til þátttöku og hafa fengið upptökur af sjö erindum sem þar voru flutt. Verkefnið byggir á samstarfi rannsakenda, sveitarfélaga og framleiðenda frá Norðurlöndunum fimm en því er ætlað að styrkja þverfagleg tengsl fagfólks og sérfræðinga við hönnun og rannsóknir á byggingum og námsumhverfi í starfi grunnskóla.

Torfi Hjartarson við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Þórdís Eik Friðþjófsdóttir hjá Reykjavíkurborg kynntu nýstárlegt umhverfi náms og kennslu í nýlegum byggingum íslenskra grunnskóla. Norræni rannsóknarhópurinn undir forystu Tiinu-Mariu Mäkelä frá Háskóla Jyväskylä í Finnlandi sýndi myndefni frá völdum skólabyggingum á Norðurlöndum og lýsti athyglisverðustu þáttum samvinnuverkefnisins; samantekt á birtum rannsóknum á námsumhverfi norrænna skólabygginga, frumathugunum á skólabyggingum í löndunum fimm. Einnig var drepið á hönnun með tilliti til inngildingar. Jennifer Charteris, sérstakur gestur frá Nýja-Sjálandi og Ástralíu, fjallaði um endurskipan rýma og ferska hugsun í skólastarfi, og Gerður Magnúsdóttir skólastjóri Barnaskóla Kársness greindi frá skólastarfi í nýju umhverfi. Gestum á staðnum bauðst í kjölfarið að skoða húsakynni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Sögu og splunkunýja skólabyggingu barnaskólans í Kársnesi.

Á vefsíðu LED Nordic má lesa nánar um verkefnið. Upptökur frá ráðstefnunni verða birtar þar innan tíðar. Ríkulega myndskreytt skýrsla um rannsóknar- og þróunarstarf LED Nordic 2024 til 2026 kemur út í haust.

Frá vinstri: Jennifer Charteris, Colin Campbell, Gerður Magnúsdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Ida Sederlund, Torfi Hjartarson, Daníel Benediktsson, Tiina-Maria Mäkelä, Markku Lang, Raija Kattilakoski, Sara Lehtonen, Bodil Hovaldt Bøjer, Þórdís Eik Friðþjófsdóttir, Palmyre Pierroux og Siv Marit Stavem. MYND/Kristinn Ingvarsson
Jennifer Charteris  MYND/Kristinn Ingvarsson
MYND/Kristinn Ingvarsson
Anna Kristín Sigurðardóttir. MYND/Kristinn Ingvarsson
MYND/Kristinn Ingvarsson