Skip to main content
21. apríl 2026

Rektor ræddi um tækifærin innan Aurora á ráðstefnu EUA

Rektor ræddi um tækifærin innan Aurora á ráðstefnu EUA - á vefsíðu Háskóla Íslands

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tók í liðinni viku þátt í pallborði á árlegri ráðstefnu Samtaka evrópskra háskóla (European University Association – EUA) sem fram fór í Istanbúl í Tyrklandi. Þar ræddi hún m.a. um ávinning Háskóla Íslands og samstarfsskóla af þátttöku í Aurora-háskólanetinu. Þá var Maximilian Conrad, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ, meðal lykilfyrirlesara á ráðstefnunni.

Auk Silju Báru og Maximilian sótti Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis, ráðstefnuna sem helguð var áskorunum í samstarfi háskóla í Evrópu, en þar var bæði horft til samstarfs þvert á skóla og við stjórnvöld og almenning.

Silja og Ragna

Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor og Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis.

Silja Bára tók þátt í pallborði sem helgað var evrópskum háskólanetum (European Universities Initiative - EUI), en Evrópusambandið styrkir nú 65 evrópsk háskólanet í gegnum Erasmus+ styrkjaáætlunina með það að markmiði að efla alþjóðlega samkeppnishæfni evrópskra háskóla og stuðla að nýsköpun og gæðum í háskólamenntun með öflugu samstarfi þvert á landamæri. Eins og kunnugt er tekur Háskóli Íslands þátt í Aurora-háskólanetinu en það hefur í tvígang fengið styrk úr Erasmus+ áætlun ESB og öðrum til viðbótar fyrir afmarkaðri verkefni. 

Yfirskrift pallborðsins var „European Universities alliances, leadership and the future of international cooperation“ og auk Sillju Báru tók Pedro Arezes, rektor Minho-háskólans í Portúgal, þátt í því. Amanda Crowfoot, framkvæmdastjóri EUA, stýrði pallborðinu. 

Rektor ræddi m.a. ávinning Háskóla Íslands af þátttöku í Aurora, sem fagnar 10 ára afmæli í ár, og hverju European Universities Initiative hefði breytt fyrir samstarf aðildarskóla Aurora. Benti hún m.a. á að með stuðningi EUI hefði verið hægt að þróa samstarf Aurora-háskólanna frekar, m.a. á sviði kennslu og rannsókna. Þverfræðilegum námskeiðum hefði fjölgað og tækifærum stúdenta til alþjóðasamstarfs sömuleiðis. Þá hefði starfsfólk bæði getað styrkt hæfni sína sem kennarar og aukið rannsóknasamstarf. 

Silja Bára benti líka á að þátttakan í Aurora hefði í för með sér dýpra alþjóðlegt samstarf fyrir HÍ en áður. „Gildi Aurora felst í því að sækja lengra fram en tíðkast í hefðbundnum nemenda- og starfsmannaskiptum og í áttina að þéttari og traustari alþjóðavæðingu menntunar og rannsókna. Með þátttöku okkar í Aurora setjum við stofnanaumbreytingu á oddinn sem felur í sér alþjóðavæðingu kjarnastarfsemi skólans í stað þess að litið sé á alþjóðavæðingu sem viðbót,“ sagði Silja Bára meðal annars.   

Maximilian

Maximilian Conrad, prófessor við Stjórnmálafræðideild, ávarpar gesti ráðstefnu EUA.

Sem fyrr segir var Maximilian Conrad, prófessor við Stjórnmálafræðideild, meðal lykilfyrirlesara á ráðstefnunni. Hann fjallaði í erindi sínu um traust til vísinda og menntunar á tímum eftirsannleikans en Maximilian leiddi stórt Evrópuverkefni, sem nefnist RECLAIM og lauk í fyrra, sem snerist um að rannsaka áhrif stjórnmála eftirsannleikans (e. post-truth politics) á lýðræði í Evrópu og víðar. Maximilian tók einnig þátt í pallborði á ráðstefnunni þar sem rætt var um hvernig háskólar geta viðhaldið trausti og uppfyllt samfélagslegar skyldur sínar í lýðræðisríkjum samtímans þar sem vaxandi vantrausts gætir.

Silja Bára og aðrir þátttakendur í pallborði