Skip to main content
14. apríl 2026

Fuglalíf og fróðleikur í Grafarvogi þann 19. apríl

Fuglalíf og fróðleikur í Grafarvogi þann 19. apríl - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vorið er seint á ferðinni í ár og varp hefur því ekki hafist enn hjá hartnær öllum farfuglum. Af þeim sökum eru margir þeirra enn í fjörum landsins þar sem þeir hlaða tankinn og bíða hagstæðari skilyrða til að hefja varp.

Sunnudaginn 19. apríl kl. 11 verður boðið upp á fuglaskoðun í fjörunni í Grafarvogi með líffræðinemum við Háskóla Íslands. Gangan er skipulögð í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna, sem er angi innan Ferðafélags Íslands. 

Reikna má með miklu fuglalífi í fjörunni

Aðstæður í vor hafa gert það að verkum að óvenju mikið fuglalíf hefur verið í fjörunum á höfuðborgarsvæðinu. Bæði fuglar sem eru að undirbúa varp og aðrir sem staldra við á leið sinni norðar á jarðarkúlunni eru að nýta fjörurnar til fæðuöflunar. Þetta skapar sérstakt tækifæri til fuglaskoðunar.

Fuglar hafa lengi heillað fólk, ekki síst vegna þess að þeir eru gjarnan sýnilegir í umhverfinu og einnig brýnn hluti af náttúrunni. En svo eru þeir líka á sífelldri hreyfingu og fljúga sem okkur er algerlega ómögulegt. Þetta heillar okkur. Þeir tengja líka saman árstíðir, staði og lönd og gefa þannig skýra mynd af breytingum í umhverfinu. Fyrir marga eru þeir fyrsta merki um vor og sumarkomu, en jafnframt áminning um hversu hratt náttúran bregst við ytri aðstæðum.

Mikilvægt að rannsaka fugla

Rannsóknir á fuglum eru mikilvægar fyrir skilning okkar á vistkerfum. Fuglar eru viðkvæmir fyrir breytingum í veðurfari og umhverfi og geta því gefið vísbendingar um stöðu lífríkisins hverju sinni. Með því að fylgjast með hegðun þeirra, ferðum og varpi er hægt að greina breytingar sem annars færu framhjá okkur.

Gangan sunnudaginn 19. apríl er hluti af verðlaunaverkefninu Með fróðleik í fararnesti, þar sem nemendur HÍ miðla þekkingu sinni á lífríki fjörunnar og fuglalífinu.

Gengið verður frá Grafarvogskirkju klukkan 11 og tekur gangan um tvær klukkustundir. Á meðan á henni stendur mun fjara út í voginum, sem eykur líkur á að sjá fjölbreytt fuglalíf. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sjónauka og fuglabækur ef kostur er, en nemendur verða einnig með sérstaka fuglasjónauka til afnota. Fyrir þau að rýna í slíka gripi sem aldrei hafa gert það, er upplifunin eins og maður hafi fuglina í fingurlengd frá sér. Talandi um sjónauka, orðið kemur úr smiðju þjóðskáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar, sem var einmitt mikill fuglaunnandi en tvö af hans þekktustu ljóðum fjalla einmitt um fugla. 

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,

Hér orti Jónas um skógarþröst en í hinu um heiðlóuna. 

Snemma lóan litla í
lofti bláu ,,dírrindí"
undir sólu syngur:
„lofið gæsku gjafarans -
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.

Það þarf ekkert að panta fyrir þessa göngu, bara mæta kl. 11 við Grafarvogskirkju og er hægt að leggja bílum í nágrenni kirkjunnar. Fólk er hvatt til að klæða sig eftir veðri. 
 

Skógarþröstur