Skip to main content

Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu

Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. maí 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþingið Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu, fer fram mánudaginn 4. maí kl. 15 - 16.30 í Hátíðasal í Aðalbyggingu HÍ. Málþingið verður einnig í streymi - hlekkur á streymi

Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við fræðafólk Deildar menntunar og margbreytileika og Deildar faggreinakennslu við Menntavísindasvið HÍ. 

Að undanförnu hefur svokallað „bakslag“ borið á góma í umræðu um jafnréttismál. Í sinni einföldustu mynd birtist það í fjölmiðlum, poppmenningu, stjórnmálum og markaðssetningu sem kerfislægar orðræður. Þar er sá árangur sem náðst hefur varðandi kynjajafnrétti, réttindi hinsegin fólks, fólks af erlendum uppruna og fleiri samfélagshópa gerður tortryggilegur. Í bakslagi eru framfarir á sviðum jafnréttis skilgreindar sem ógn eða byrði og sá hópur sem barist hefur fyrir jafnréttinu er jafnan gerður ábyrgur. Hérlendis hefur bakslagið ekki síst birst í tengslum við kennslu, skólastarf og vinnu með ungu fólki. Á þessi málþingi verður fjallað um þessar ólíku hliðar og gefin dæmi um kerfisbundin mynstur sem vinna gegn jafnrétti í íslensku menntakerfi og hvernig standa má vörð um þau framfaraskref sem hafa verið stigin á síðustu árum.

Dagskrá 

Kl.15:00 - Opnunarávarp - Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ.

Kl. 15:05 - Norræna menntahefðin í uppnámi: Bakslag í menntakerfum - Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor og forseti deildar menntunar og margbreytileika við Menntavísindasvið HÍ. 

Kl. 15:20 - Evrópumethafi í kynjaójafnrétti? Af drengjum og öðrum nemendum í skólakerfinu. Íris Ellenberger, prófessor og Katrín Ólafsdóttir, lektor báðar við deild faggreinakennslu við Menntavísindasvið HÍ. 

Kl. 15:35 – In a cycle of racial progress and institutional resistance - Elizabeth Lay, doktorsnemi og aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði HÍ.  

Kl. 15:50 - Algrímur, bakslag og kynjakerfið - Þórður Kristinsson, doktorsnemi við Menntavísindasvið og framhaldsskólakennari. 

Kl. 16:05 - Pallborðsumræður 

Kl. 16:25 - Lokaávarp - Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Fundarstjóri er Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor.

Verið öll velkomin.

Málþingið, Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu, fer fram mánudaginn 4. maí kl. 15 - 16.30 í hátíðarsalnum í aðalbyggingu HÍ. Hlekkur á streymi Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við fræðafólk Deildar mentunar og margbreytileika og Deildar faggreinakennslu við MVS. 

Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu