Skip to main content
7. apríl 2026

Hefur þú kynnt þér samskiptasáttmála Háskóla Íslands?

Hefur þú kynnt þér samskiptasáttmála Háskóla Íslands? - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands hefur sett sér samskiptasáttmála sem aðgengilegur er á vefsíðu skólans. Starfsfólk og nemendur eru hvött til að kynna sér efni hans og þau viðbrögð sem hægt er að grípa til upplifi fólk neikvæð eða ófagleg samskipti.
 
Sáttmálinn er leiðarljós um góð samskipti og hefur það markmið að stuðla að jákvæðri, heilbrigðri og inngildandi vinnustaðamenningu.
 
Við mótun sáttmálans var lögð áhersla á víðtækt samráð við starfsfólk og nemendur. Niðurstöður úr því samráðsferli voru nýttar við gerð sáttmálans sem nú hefur verið samþykktur.
 
Vinna er hafin við kynningu og innleiðingu sáttmálans. Myndefni sem fylgir fréttinni er hluti af kynningarefni sem nýtt verður í þeirri vinnu og vísar meðal annars til þeirra áherslna sem snúa að kurteisi og tillitssemi.
 
Frekari upplýsingar veitir mannauðssvið í gegnum netfangið mannaudur@hi.is.

Myndefnið er hluti af kynningarefni sem nýtt verður í þeirri vinnu og vísar meðal annars til þeirra áherslna sem snúa að kurteisi og tillitssemi.