Reglur fyrir Keili - Háskólabrú Háskóla Íslands, nr. 254/2026
1. gr. Almennt.
Keilir – Háskólabrú Háskóla Íslands er kennslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
2. gr. Hlutverk.
Meginhlutverk stofnunarinnar er að annast undirbúningsnám fyrir háskóla, svokallað aðfaranám, fyrir nemendur sem uppfylla ekki inntökuskilyrði í háskóla, sbr. 4. mgr. 19. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.
Stofnunin ber ábyrgð á skipulagi, kennslu og gæðum námsins og tryggir að það uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til undirbúnings fyrir nám við deildir Háskóla Íslands. Stofnunin skal meðal annars:
- Þróa og endurskoða námsefni og námsleiðir í samráði við viðeigandi deildir Háskóla Íslands.
- Annast inntöku nemenda í aðfaranám í samræmi við reglur sem háskólaráð setur.
- Hafa umsjón með kennslu, námsmati og gæðaeftirliti námsins.
- Stuðla að samstarfi við deildir Háskóla Íslands og aðra hagsmunaaðila um þróun aðfaranáms.
- Bjóða undirbúning fyrir annað nám við Háskóla Íslands (s.s. inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun).
3. gr. Aðstaða.
Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.
4. gr. Skipulag.
Starfsemi stofnunarinnar skiptist í deildir sem endurspegla inntökukröfur ólíkra fræðasviða Háskóla Íslands. Tekið skal mið af reglum um aðfaranám í háskólum nr. 835/2019 við uppbyggingu námsins og inntöku nemenda.
Stjórn stofnunarinnar setur nánari starfsreglur um skipulag deilda og framkvæmd kennslu og námsmats.
5. gr. Stjórn.
Stjórn skipa þrír fulltrúar, einn tilnefndur af rektor Háskóla Íslands og tveir tilnefndir af forseta Menntavísindasviðs og skal annar þeirra vera formaður. Forstöðumaður stofnunarinnar og rekstrarstjóri Menntavísindasviðs sitja fundi stjórnar og hafa tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Forstöðumaður stofnunarinnar ritar fundargerð.
Stjórnarfundi skal halda minnst einu sinni á hverju misseri.
6. gr. Stjórnarfundir.
Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi með sannanlegum hætti með minnst þriggja daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina frá dagskrá fundar.
Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef rektor ber fram slíka ósk og hefur rektor þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum en ekki atkvæðisrétt.
Komi til atkvæðagreiðslu í stjórn ræður meirihluti atkvæða. Rita skal fundargerð stjórnarfunda og staðfesta hana á næsta fundi.
7. gr. Verkefni stjórnar.
Stjórn fjallar um öll málefni stofnunarinnar, mótar stefnu um starfsemi hennar, ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart forseta fræðasviðs og samþykkir fjárhagsáætlun.
Stjórn sker úr vafaatriðum er upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar. Stjórn undirbýr ásamt forstöðumanni rekstrar- og fjárhagsáætlun. Heimilt er að framselja ákvörðunarvald um smærri verkefni til forstöðumanns.
Stjórninni er ætlað að fylgja stefnu Háskóla Íslands um aðfaranám og gæði þess. Einnig er stjórn ætlað að tryggja samráð og tengsl við önnur fræðasvið háskólans, kennslusvið og aðra hagsmunaaðila, eftir þörfum.
Stofnunin skal birta árlega skýrslu um starfsemi sína m.a. með helstu lykiltölum úr rekstri.
8. gr. Forstöðumaður og annað starfsfólk.
Forseti Menntavísindasviðs ræður forstöðumann stofnunarinnar. Forstöðumaður skal hafa lokið meistaraprófi hið minnsta og hafa staðgóða þekkingu og reynslu af kennslu, námskrárgerð og stjórnun á sviði menntamála. Forseti fræðasviðs útbýr starfslýsingu forstöðumanns þar sem nánar er kveðið á um verkefni hans. Um ráðningu forstöðumanns og annars starfsfólks fer að öðru leyti eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Forstöðumaður stýrir daglegum rekstri stofnunarinnar í samráði við stjórn og situr fundi hennar. Hann ber ábyrgð á framkvæmd námsins, starfsmannahaldi og samskiptum við nemendur og kennara.
9. gr. Fjármál.
Tekjur Háskólabrúar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:
- Fjárveiting ríkisins.
- Námsgjöld nemenda.
- Styrkir til einstakra verkefna.
- Greiðslur fyrir þjónustuverkefni.
- Aðrar tekjur, sbr. samningar við opinbera aðila eða einkaaðila.
Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskóla Íslands og Menntavísindasviðs og heyra alfarið undir stjórn sviðsins. Starfsemin skal hafa sérstök viðfangsnúmer. Fjárhagsáætlanir skulu bornar undir forseta fræðasviðs til samþykktar.
Starfsemin skal fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri sviðsins og þess gætt að hún sé ekki niðurgreidd með öðrum tekjum í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands.
10. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu stjórnar Menntavísindasviðs, öðlast þegar gildi.
Háskóli Íslands, 2. mars 2026.