Skip to main content
17. mars 2026

Heimildarmynd, hugvísindi og lífríkisrannsóknir á ársfundi Stofnunar rannsóknasetra

Heimildarmynd, hugvísindi og lífríkisrannsóknir á Ársfundi Stofnunar rannsóknasetra HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Heimildarmynd um höfuðból í Suðursveit sem eyðilagðist í jökulhlaupi fyrir um 150 árum, miðlun mengunarrannsókna á samfélagsmiðlum, listrænar rannsóknir í náttúruhugvísindum og rannsóknir á æðarfugli um allt land er meðal þess sem fjallað verður um á ársfundi Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands sem fram fer í stofu 261 í Sögu fimmtudaginn 19. mars kl. 13-16.30. Ársfundurinn er öllum opinn og hann verður einnig í streymi.

Háskóli Íslands starfrækir alls tólf rannsóknarsetur um allt land en þar fæst vísindafólk við rannsóknir sem spanna allt frá líffræði lands og sjávar, jarðfræði og umhverfishugvísindum til sagnfræði, fornleifafræði og þjóðfræði. Á rannsóknasetrunum fá nemendur Háskólans enn fremur tækifæri til að vinna að rannsóknum og setrin eru jafnframt vettvangur samstarfsverkefna háskólans við nærumhverfi og nærsamfélög en að því samstarfi koma t.d. sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar.

Þessar fjölbreyttu rannsóknaráherslur endurspeglast vel í þeim erindum sem flutt verða á ársfundi Stofnunar rannsóknarsetra en þar verður gefin innsýn í starf setra í öllum landshlutum. 

Meðal þeirra sem taka til máls er Alice Watterson, rannsóknasérfræðingur hjá Rannsóknasetri HÍ á Hornafirði, sem hefur sameinað fornleifafræði og sjónræna hönnun í sínum rannsóknum. Hún mun segja frá nýrri heimildarmynd sinni, Lífið undir Fellinu, sem fjallar um hið forna höfuðból Fell á Breiðamerkursandi sem eyðilagðist í miklu jökulhlaupi árið 1868. Markaði það endalok búskapar á Breiðamerkursandi. Í myndinni er forvitnileg saga þessa bæjar rakin, bæði í viðtölum við heimafólk og með stafrænni endursköpun á bænum og bæjarstæðinu, en ummerki um bæinn má enn finna í landslagi Breiðamerkursands. Heimildarmyndin hefur verið valin til sýninga á Stockfish-kvikmyndahátíðinni sem hefst þennan sama dag í Bíó Paradís og er hún tilnefnd til verðlauna á hátíðinni.

Á ársfundinum mun annar ungur vísindamaður, Hermann Dreki Guls, sem starfar við Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum, flytja erindi um rannsóknir á setrinu og ekki síst hvernig þeim er miðlað. Vísindamenn setursins sinna bæði vöktun og rannsóknum á áhrifum mengunar á sjávarlífverur og útbreiðslu ágengra tegunda við Íslandsstrendur. Hermann og samstarfsfólk hefur m.a. veitt innsýn í rannsóknirnar með fjölbreyttri myndmiðlun á bæði Facebook- og Instagram-síðum rannsóknasetursins.  

Alls verða flutt sex erindi um vísindarannsóknir starfsfólks rannsóknasetra HÍ á ársfundinum en einnig verður horft til framtíðar í málefnum setranna á fundinum. Von er á breytingum á skipulagi Stofnunar rannsóknasetra HÍ því gert er ráð fyrir að stofnunin flytji höfuðstöðvar sínar í Skagafjörð í kjölfar þess að Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum renna saman í háskólasamstæðu á næstunni. 

Sem fyrr segir er ársfundur Stofnunar rannsóknasetra HÍ opinn öllum áhugasömum en dagskrá fundarins í heild sinni má finna á viðburðadagatali skólans.
 

""