Varði doktorsritgerð um birtingarmyndir reiði í bókmenntum

Rósa María Hjörvar hefur varið doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði, Mælskur af bræði: Reiði, heimsveldi og nýlenduminni í íslenskum nútímabókmenntum, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Gunnþórunnar Guðmundsdóttur, prófessors í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Kristinn Helgi Magnússon Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og Sif Ríkharðsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafæði við Háskóla Íslands.
Andmælendur við vörnina voru Haukur Ingvarsson, lektor við Háskóla Íslands, og Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands. Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 6. mars.
Um rannsóknina
Í ritgerðinni er unnið með birtingarmyndir reiði í þremur íslenskum verkum, Tómasi Jónsyni metsölubók (1966) eftir Guðberg Bergsson, Innansveitarkroniku (1970) eftir Halldór Laxness og Höfundi Íslands (2001) eftir Hallgrím Helgason. Reiði í verkunum er skoðuð í ljósi eftirlendufræða með áherslu á minni heimsveldisins og nýlendunnar. Í greiningunni er unnið með hugmynd um gróteska reiði og reynt að skýra menningarleg tengsl hennar og virkni innan texta.
Um doktorinn
Rósa María Hjörvar lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði með fornleifafræði sem aukagrein við Syddansk Universitet og meistaraprófi í almennri bókmenntafræði við Kaupmannahafnarháskóla. Hún starfar sem stafrænn verkefnastjóri og sinnir stundakennslu við Háskóla Íslands.







