Góðum árangri fagnað á Menntavísindasviði

Starfsfólk Menntavísindasviðs kom saman þann 26. febrúar á kaffistofu á 5. hæð í Sögu til að fagna og heiðra þau úr hópi starfsfólks og doktorsnema Menntavísindasviðs sem hafa fengið rannsóknarstyrki nýverið. Markmiðið var að vekja athygli á þessum góða árangri sem styrkir orðspor Menntavísindasviðs og eykur sýnileika rannsókna á sviðinu.
Fimm rannsóknarverkefni frá Menntavísindasviði fengu styrk frá Menntarannsóknasjóði, fjögur frá Rannís og þrjú rannsóknarverkefni hlutu Erasmus styrki nýverið:
Menntarannsóknasjóður:
- Guðrún Ragnarsdóttir: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
- Hannes Ottósson: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.
- Sara Margrét Ólafsdóttir: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).
- Eva Harðardóttir: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.
- Valgerður S. Bjarnadóttir: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.
Verkefnisstyrkur, Rannsóknasjóður Rannís:
- Rúna Sif Stefánsdóttir, Ársæll Már Arnarsson, Vaka Rögnvaldsdóttir: Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna
Einnig fékk starfsfólk Menntavísindasviðs verkefnastyrki með öðrum sviðum:
- Þórhallur Eyþórsson, Heimir Freyr Viðarsson (Hugvísindasvið): Málsambýli í eldri íslensku: Þáttur samfélagsgerðar og myndunar þéttbýliskjarna í málbreytingum
- Kathryn Margaret Crowe, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir (Heilbrigðisvísindasvið): Orðaheimurinn batnandi fer
Doktorsnemastyrkir Rannís:
- Brittany Marie Repella: Næra og Fræða – Fæðufærni, næringarfræðsla og fæðuóöryggi
- Lóa Guðrún Gísladóttir: Að byggja betri framtíð með því að efla velferð barna og foreldra: Mat og gildi foreldranámskeiðsins Tengjumst í leik á Íslandi
- Unnur Edda Garðarsdóttir: "Ég vil bara að einhver elski mig" Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís
Erasmus+ verkefni í gegnum landsskrifstofu
- Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir: Teachers' education - advocating for children's rights
- Ólafur Páll Jónsson: Supporting Open Learning and Understanding Teens In Opportunities for Neighbourhoods and Nature
Erasmus+ verkefni í gegnum Brussel
- Ólafur Páll Jónsson: LIFE; Launching Inspirational pathways for transFormative Education
Við óskum öllum styrkhöfum til hamingju!





