Varði doktorsritgerð um danskar samtímabókmenntir og samtímamyndlist

Sigrún Alba Sigurðardóttir hefur varið doktorsritgerð sína í dönsku, Poetiske fortællinger i traumatiske tider: Om jordiske relationer, resonans, bearbejdelse og alternative levemåder i dansk samtidslitteratur og samtidskunst, við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Gísla Magnússonar, prófessors í dönsku við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Ann-Sofie N. Gremaud, dósent við Háskóla Íslands, og Mette Sandbye, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla.
Andmælendur við vörnina voru Elisabeth Friis, dósent við Háskólann í Lundi í Svíþjóð, og Rune Gade, dósent við Kaupmannahafnarháskóla. Þórhallur Eyþórsson, varadeildarforseti Mála- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, fimmtudaginn 26. febrúar. Vörnin fór fram á dönsku.
Um rannsóknina
Í doktorsritgerð sinni fjallar Sigrún Alba um jarðnesk tengsl, samsveiflu, trámaúrvinnslu og hugmyndir um annars konar lifnaðarhætti í dönskum samtímabókmenntum og samtímamyndlist. Í ritgerðinni er því haldið fram loftslagsbreytingar, og þær loftslagshamfarir sem nú eiga sér stað, hafi orsakað trámatískt rof í ríkjandi hugmyndaheimi og þekkingarrými á Vesturlöndum. Færð eru rök fyrir því að sú breyting á hugarfari sem hið trámatíska rof hefur valdið endurspeglist á markverðan hátt í dönskum samtímabókmenntum og samtímalist. Áhersla er lögð á hvernig sköpunarkraftur listarinnar getur mótað hugarfar, haft áhrif á tengingu okkar við önnur jarðnesk fyrirbæri og í gegnum ljóðrænar frásagnir gert okkur mögulegt að vinna úr trámanu og ímynda okkur annars konar lifnaðarhætti en við búum við í dag. Meðal verka sem tekin eru til greiningar eru skáldsögur eftir Solvej Balle og Theis Ørntoft og myndlistarverk eftir Rune Bosse, Astrid Kruse Jensen og Trine Søndergaard. Rannsóknin er þverfræðileg og einkum er stuðst við kenningar sem sóttar eru til fyrirbærafræði, sálgreiningar og pósthúmanískra fræða.
Um doktorinn
Sigrún Alba Sigurðardóttir er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og lauk cand.mag. gráðu í nútímamenningu- og menningarmiðlun (moderne kultur og kulturformidling) frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2004. Síðan þá hefur hún starfað sem fræðimaður, rithöfundur og sýningarstjóri auk þess sem hún var lektor og dósent við Listaháskóla Íslands um árabil.





