Skip to main content
27. febrúar 2026

Vísindamenn við HÍ sigruðu í Gullegginu

Vísindamenn við HÍ sigruðu í Gullegginu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sprotafyrirtækið Affineva, sem þrír vísindamenn við HÍ standa að og vinnur að því að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma, sigraði í frumkvöðlakeppninni Gullegginu í ár en úrslit voru kunngjörð í gær. Nemendur skólans komu enn fremur að þremur öðrum hugmyndum sem komust í úrslit keppninnar.

KLAK - Icelandic Startups heldur utan um Gulleggið en keppnin hefur verið haldin í nærri 20 ár og er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum sem áhugafólki um nýsköpun, og hefur í gegnum árin reynst mikilvægur stökkpallur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla á Íslandi. Líkt og fyrri ár voru tíu teymi valin til þátttöku í lokakeppni Gulleggsins en valið fór fram í kjölfar Masterclass Gulleggsins sem haldið var í Grósku. Afar fjölbreytt teymi tóku þátt í keppninni í ár og spönnuðu hugmyndir þeirra allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir.

Gulleggid

Aðstandendur hugmyndanna tíu sem kepptu til úrslita í Gullegginu. MYND/Gulleggið

Þegar upp var staðið valdi dómnefnd keppninnar Affineva sigurvegara keppninnar en að sprotafyrirtækinu standa Berglind Eva Benediktsdóttir og Páll Þór Ingvarsson, dósentar við Lyfjafræðideild, og Jens Guðmundur Hjörleifsson, lektor við Líf- og umhverfivísindadeild. Þau hafa þróað nýja tækni með nanóögnum sem kallast „extracellular vesicles (EVs)“. Markmiðið er að nýta tæknina til að hraða þróun næstu kynslóðar krabbameinslyfja og jafnframt bæta greiningaraðferðir krabbameina. Í verðlaunafé fengu þau tvær milljónir króna. Ýmis aukaverðlaun voru veitt í keppninni og hlaut Affineva bæði Frumukjarnann – líftækniverðlaun Gulleggsins frá Alvotech og Frumunnni og verðlaun Grósku og Heima sem felast í aðgangi að aðstöðu í Grósku til að þróa hugmyndina í nálægð við önnur sprotafyrirtæki og fjárfesta.

Sprotafyrirtækið Araxni var einnig valið til þátttöku í úrslitum en það vinnur að því að þróa líftækniframleitt köngulóarsilki fyrir sjávarútveg, textíl og fleira. Að hugmyndinni standa Snorri Björn Magnússon, Heiðrún Inga Guðmundsdóttir og Eneka Abel Sigurðardóttir, meistaranemar í líffræði, Waqas Ahmad, meistaranemi í iðnaðarlíftækni, og Mikael Norðquist, meistaranemi í lífefna- og sameindalíffræði, öll við Háskóla Íslands. Vísindalegir ráðgjafar verkefnisins eru þeir Ingi Agnarsson, prófessor í líffræði við HÍ, og Guðjón Ólafsson, lektor við Læknadeild skólans.

Enn fremur er Jón Baldvin Helgason Möller einn af aðstandendum verkefnisins Ókind, sem komst í úrslitin, en Ókind vinnur að því að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.

Þá hlaut fyritækið E-lísa verðlaun KPMG sem fólust í 20 klukkustunda ráðgjöf. Guðjón Helgi Eggertsson, jarðfræðingur og nemi í opinberri stjórnsýslu við HÍ, stendur að E-lísu en markmið fyrirtækisins er að draga úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggja að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum.

Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Sigurvegarar Gulleggsins 2026 þau Páll Þór Ingvarsson, Jens Guðmundur Hjörleifsson og Berglind Eva Benediktsdóttir.