Skip to main content
26. febrúar 2026

Háskóli Íslands og Hagstofan undirrita samning um samstarf

Háskóli Íslands og Hagstofan undirrita samning um samstarf - á vefsíðu Háskóla Íslands

Markmið samnings, sem Háskóli Íslands og Hagstofa Íslands undirrituðu á dögunum, er að auka samstarf stofnananna á sviði rannsókna með því að veita nemendum í framhaldsnámi við Heilbrigðisvísindasvið tækifæri til að taka starfsnámshluta meistaranáms og vinna að lokaverkefnum í rannsóknarnámi við Hagstofu Íslands. Er það hagur beggja að styrkja samstarfið og bæta þannig tengsl Hagstofu Íslands og fræðasamfélagsins. Af hálfu Háskóla Íslands annast Heilbrigðisvísindasvið framkvæmd og umsýslu þessa samkomulags í samvinnu við deildir sviðsins eins og við á.

Með samkomulaginu er metnaðarfullum nemendum gert kleift að fylgja fagfólki Hagstofunnar að störfum og vinna undir handleiðslu þess að hagnýtum verkefnum og þannig auka við þekkingu sína og færni við gagnavinnslu og fagvinnu á vettvangi.

Samkomulagið gerir Hagstofunni kleift að auka gæði starfseminnar og leggja af mörkum til menntunar rannsakenda á sviði heilbrigðisvísinda með því að fá til liðs við sig metnaðarfulla nemendur í starfsnám, sem mun, til lengri tíma litið, bæta starfsemi Hagstofunnar og þær afurðir sem frá henni koma. Aukin gæði, vandaðri afurðir og starfsnámstækifæri eru að auki til bóta fyrir Heilbrigðisvísindasvið og fræðasamfélagið í heild sinni þegar litið er til framtíðar.
 

Samningurinn var undirritaður á rektorsskrifstofu og það gerðu Hrafnhildur Arnkelsdóttir Hagstofustjóri og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor HÍ, Unnur Valdimarsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, og Ólafur Arnar Þórðarson frá deild samskipta og samstarfs á Hagstofunni. MYND/Kristinn Ingvarsson