Sækjum fram saman

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Ég er afar stolt af þeim stóra hópi nemenda sem velur Háskóla Íslands til að stunda háskólanám, lýkur héðan námi og heldur út í samfélagið og atvinnulífið nestaður nýrri þekkingu. Nú síðast á föstudag fögnuðum við hartnær 450 útskriftarnemum sem héldu út í þjóðlífið með nýja prófgráðu, bæði úr grunn- og framhaldsnámi af öllum fræðasviðum skólans.
Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að koma til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda sinna. Á undanförnum árum hefur skólinn unnið með stúdentum að því að efla margvíslega þjónustu til að þeim geti liðið sem best í skólanum og sinnt námi sínu af kappi. Eftir að ég tók við embætti rektors 1. júlí sl. var það eitt fyrsta verkefni mitt að bæta við stöðu sálfræðings við Nemendaráðgjöf HÍ, enda er þörfin mikil og hefur slíkur stuðningur verið baráttumál samtaka stúdenta í nokkurn tíma. Þá stendur nú yfir vinna við endurskipulagningu á aðstöðu Nemendaráðgjafar með þarfir stúdenta að leiðarljósi.
Á sama tíma og við viljum sækja fram á öllum sviðum stöndum við í HÍ frammi fyrir því að fjárframlög til skólans standa í stað. Þessu hefur fylgt niðurskurður en í þeim aðgerðum hefur allra leiða verið leitað til að reyna að tryggja að þjónusta við nemendur verði óbreytt. Óhjákvæmilegt virðist þó að niðurskurðurinn hafi áhrif á einhverjum sviðum enda koma þessar ráðstafanir harkalega niður á kjarnastarfsemi skólans sem þyrfti 20% meira fjármagn til að standast samanburð við aðra norræna háskóla.
Rektorar opinberu háskólanna hafa um árabil kallað eftir því að hámark skrásetningargjalda, sem kveðið er á um í lögum um opinbera háskóla, yrði hækkað, en það hefur verið óbreytt í 12 ár. Gjaldið stendur undir mikilvægri þjónustu við nemendur, ekki aðeins skráningarkerfum skólans. Hér má nefna rekstur hugbúnaðarkerfa með upplýsingum um námsframboð, nám og námsframvindu, upplýsingamiðlun, námsráðgjöf og annan stuðning við námið, aðgengi að tölvuþjónustu og bókasöfnum og framlag til stofnana á vegum stúdenta, eins og Félagsstofnunar stúdenta og Stúdentaráðs. Andstætt því sem stundum hefur verið haldið fram stendur skrásetningargjaldið á traustum grunni og er þess skemmst að minnast að úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema nr. 2/2024 um þetta efni var kynntur á fundi háskólaráðs HÍ 4. desember 2025.
Útreikningar HÍ sýna að skrásetningargjaldið stendur ekki undir þeim kostnaði sem fylgir þeirri þjónustu sem skólanum er ætlað að veita nemendum. Til þess hefði skrásetningargjaldið þurft að vera 180.049 kr. á hvern nema árið 2024 eins og fram kom í erindi forvera míns og annarra rektora opinberra háskóla til ráðuneytis háskólamála sl. vor. Í desember sl. samþykkti Alþingi svo heimild til að hækka skrásetningargjaldið úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Það væri óábyrgt af HÍ að nýta ekki þá gjaldtökuheimild sem ríkið hefur veitt til að efla þá þjónustu sem ljóst er að mikil þörf er á. Þó að skrásetningargjaldið standi ekki undir þeim kostnaði sem það á að gera nemur það engu að síður tæplega 4% af fjárveitingu Háskóla Íslands.
Það er skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og hef ég ítrekað tekið undir það sjónarmið að ábyrgðin á fjármögnun HÍ liggi hjá stjórnvöldum. Þetta kom m.a. skýrt fram í bókun háskólaráðs í desember sl. þar sem bent er á að skrásetningargjaldið sé „fjarri því að nægja fyrir þeim kostnaði sem því er ætlað að standa undir og því þarf að tryggja það fjármagn á annan hátt.“ Ég hef rætt þetta við fulltrúa stúdenta á fundum frá því ég tók til starfa og lagt áherslu á að ég vil vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. Ég ítreka vilja minn til samstarfs við stúdentahreyfinguna um að við sækjum saman fram í samtali við stjórnvöld um að efla stuðning við háskólastigið. Um leið og við bætum hag Háskóla Íslands og stúdenta treystum við samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Aðgengi að fjölbreyttri og öflugri háskólamenntun er ekki aðeins hagsmunamál stúdenta heldur brýnt framfaramál samfélagsins alls og þeirri ábyrgð verðum við að mæta sameiginlega.
Silja Bára R. Ómarsdóttir
rektor Háskóla Íslands“
