Loftslagsmál og rannsóknir

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.
Fyrsti viðburðurinn fer fram föstudaginn 6. mars kl. 13–15 í Auðarsal í Veröld, HÍ.
Dagskrá :
Setning málþings, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ
Ávarp, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Erindi:
- Hugmyndin um loftslagssetur - Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ
- Loftslagsbreytingar á Íslandi, nokkrar afleiðingar, þekkingargöt og rannsóknaþörf - Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild HÍ og Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
- Loftslagsbreytingar, líffræðileg fjölbreytni og landvistkerfi - Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri sviðs rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi
- Ímyndunarafl gegn loftslagsvá? Um framsýni, samfélagsleg gildi og sjálfsmyndir - Bergsveinn Þórsson, dósent við Háskólann á Bifröst
Pallborðsumræður fyrirlesara.
Fundarstjóri: Sæunn Stefánsdóttir, sviðstjóri þróunarsviðs HÍ.
Öll velkomin.
Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Fyrsti viðburðurinn fer fram föstudaginn 6. mars kl. 13–15 í Auðarsal í Veröld, HÍ.
