Skip to main content
20. febrúar 2026

Endurnýjun samnings um Vigdísarstofnun sem UNESCO-stofnun

Endurnýjun samnings um Vigdísarstofnun sem UNESCO-stofnun - á vefsíðu Háskóla Íslands

UNESCO, Háskóli Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafa endurnýjað samning  um að Vigdísarstofnun – Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar starfi áfram sem UNESCO-stofnun í flokki 2. Samningurinn er gerður til átta ára og gildir til ársins 2033. Í tilefni af þessu átti Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, fund með Khaled El-Enany, aðalframkvæmdastjóra UNESCO, þar sem rætt var um samstarfið. Þau ítrekuðu sameiginlega skuldbindingu um að styðja við tungumálafjölbreytni, fjöltyngi og þvermenningarlegt samtal á tímum þegar friður og samtal eru mikilvægari en nokkru sinni.

Vigdísarstofnun mun áfram styðja alþjóðlegt starf UNESCO til að tryggja að tungumál haldi áfram að dafna á tímum stafrænnar tækni og að samfélög, einkum á norðurslóðum og á Norðurlöndum, geti varðveitt og miðlað tungumálaarfi sínum til komandi kynslóða.

„Tungumálið er kjarni menningar og sjálfsmyndar þjóðar – lifandi verðmæti sem mótað er af fortíð okkar, og vex og þróast með framtíðinni. Endurnýjað umboð Vigdísarstofnunar sem UNESCO stofnun í flokki 2 rennir styrkum stoðum undir sameiginlega skuldbindingu okkar um að rækta, virða og styðja við tungumál með rannsóknum, menntun og máltækni. Sem tæknivædd og fróðleiksfús þjóð, er Ísland stolt af því að leggja sitt af mörkum til alþjóðlegs samstarfs sem tryggir að tungumál haldi áfram að vaxa, dafna og vera lifandi hluti af menningu í stafrænum heimi.“ — Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. 

Stofnanir í flokki 2 eru sjálfstæðar stofnanir starfræktar undir merkjum UNESCO. Þær vinna í nánu samstarfi við stofnunina og leggja sitt af mörkum til áætlana og forgangsverkefna hennar, um leið og þær miðla sérfræðiþekkingu, rannsóknum og svæðisbundinni þekkingu til að vekja máls á alþjóðlegum áskorunum. Endurnýjun samningsins gerir Vigdísarstofnun kleift að gegna lykilhlutverki í að efla fjöltyngi, styðja við rannsóknir á tungumálum í útrýmingarhættu og minnihlutamálum, og  þróa nýsköpunarverkefni til að viðhalda fjölbreytni tungumála og menningar.

„Fjöltyngi er kjarninn í starfi UNESCO við að styðja inngildandi og þekkingarmiðuð samfélög.  Endurnýjunin styrkir sameiginlega skuldbindingu okkar um að vernda fjölbreytni tungumála, efla samtal á milli menningarheima  og tryggja að öll tungumál, sérstaklega þau sem eru í útrýmingarhættu, geti dafnað í stafrænum heimi.“ — Dr. Tawfik Jelassi, aðstoðarforstjóri á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar, UNESCO.

Vigdísarstofnun – Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar var stofnuð í Reykjavík í kjölfar samþykktar aðalráðstefnu UNESCO árið 2011 um að miðstöðin yrði UNESCO stofnun í flokki 2.

Með þessu endurnýjaða umboði koma UNESCO og Vigdísarstofnun til með að halda áfram samstarfi um að efla rannsóknir, menntun, og hagnýtar lausnir fyrir fjöltyngi, stuðla að inngildandi samfélögum, samtali milli menningarheima og virðingu milli samfélaga um allan heim.

Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, með Khaled El-Enany, aðalframkvæmdastjóra UNESCO.