Margrét Sigrún verður sviðsstjóri kennslusviðs

Margrét Sigrún Sigurðardóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild, hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra kennslusviðs og tekur við störfum af Kristni Andersen þann 1. apríl næstkomandi.
Margrét Sigrún lauk doktorprófi í skipulagsheildakenningum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2010, meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2004 og grunnnámi í heimspeki frá sama skóla árið 1998. Auk þessa hefur hún diplómu í kennslufræði háskóla frá Háskóla Íslands.
Margrét Sigrún hefur í störfum sínum öðlast víðtæka þekkingu á þróun náms og kennsluhátta á háskólastigi og framkvæmd stefnumála. Hún hefur um árabil starfað innan Háskóla Íslands, m.a. sem deildarforseti Viðskiptafræðideildar frá júlí 2025, og sem kennari við deildina frá árinu 2010. Hún starfaði sem kennsluþróunarstjóri og formaður kennslunefndar Félagsvísindasviðs árin 2017-2022 og hefur auk þess setið í Hugverkanefnd Háskóla Íslands og Landspítala og verið formaður meistaranámsnefndar Viðskiptafræðideildar. Þá sinnti hún starfi stefnuinnleiðingarfulltrúa Félagsvísindasviðs og átti sæti í sjálfsmatsnefnd Viðskiptafræðideildar.
Margrét Sigrún sat í undirbúningsnefnd fyrir stofnun Kennsluakademíu opinberu háskólanna árið 2021 og var formaður stjórnar Kennsluakademíunnar 2022 og 2023.
Kennslusvið er eitt stoðsviða Háskóla Íslands. Sviðið fer með sameiginleg málefni sem varða kennslu og nám, svo sem inntöku og skráningu stúdenta, mat á námi, nemendaráðgjöf, kennslumál og próf.
