Skip to main content
12. febrúar 2026

HÍ annast alþjóðlega rannsókn á árangri nemenda í stærðfræði og náttúrufræði

HÍ annast alþjóðlega rannsókn á árangri nemenda í stærðfræði og náttúrufræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ísland tekur þátt í TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu og hefur Menntavísindastofnun Háskóla Íslands verið falin umsjón með rannsókninni hér á landi. Með þátttöku í rannsókninni fjölgar mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, undirrituðu samning um undirbúning og framkvæmd TIMSS-rannsóknarinnar á Íslandi 2027 í ráðuneytinu í dag.

Um TIMSS-rannsóknina

TIMSS-rannsóknin (Trends in International Mathematics and Science Study), metur þekkingu og færni nemenda í 4. og 8. bekk grunnskóla í stærðfræði og náttúrufræði. Markmið rannsóknarinnar er að

  • bera saman námsárangur milli landa,
  • greina þróun í námsárangri yfir tíma og
  • kanna þætti sem hafa áhrif á nám, svo sem kennsluaðferðir, námskrá og viðhorf nemenda.

International Association for the Evaluation of Educational Achievement (IEA) stendur að rannsókninni og hefur hún verið framkvæmd á fjögurra ára fresti frá 1995.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra ásamt Ólöfu Rögnu Einarsdóttur, verkefnastjóra hjá Menntavísindastofnun HÍ, Steingerði Ólafsdóttur, forstöðukonu Menntavísindastofnunar HÍ, og Ellen Dröfn Gunnarsdóttur, rannsóknarstjóra TIMSS innan Menntavísindastofnunar. MYND/Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þátttaka Íslands

Ísland var meðal þátttakenda þegar TIMSS-rannsóknin fór fyrst fram árið 1995 en hefur ekki tekið þátt frá þeim tíma þar til nú og bætist þar í hóp annarra norrænna ríkja sem öll taka þátt í rannsókninni.

Mennta og barnamálaráðuneytið hefur falið Menntavísindastofnun Háskóla Íslands að annast undirbúning og framkvæmd TIMSS á Íslandi á grundvelli samningsins. Gert er ráð fyrir að rannsóknin verði lögð fyrir nemendur í öllum skólum landsins á næsta ári þar sem nemendur svara spurningum og leysa verkefni í stærðfræði og náttúrufræði. Auk þess svara nemendur, kennarar og skólastjórnendur spurningalistum um námsumhverfi og kennsluaðferðir. Forprófun fer fram í vor.

Mikilvægi rannsóknarinnar

Niðurstöður TIMSS veita stjórnvöldum og skólum gögn til að

  • meta styrkleika og veikleika í námi,
  • þróa kennsluaðferðir og námskrá,
  • setja markmið fyrir framtíðina.

„Þátttaka Íslands í TIMSS, auk PISA, gefur okkur mikilvægar upplýsingar um stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði. TIMSS veitir einnig ítarlegri upplýsingar um kennsluhætti og viðhorf kennara. Við þurfum fleiri mælikvarða og vinnum að fjölgun þeirra. Upplýsingarnar hjálpa okkur að bæta menntakerfið með gagnadrifinni stefnumótun og sömuleiðis að styðja við íslenskar menntarannsóknir,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

Frekari upplýsingar um TIMSS-rannsóknina á vef IEA

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands t.v. og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ t.h., við undirritun samnings við Menntavísindastofnun HÍ í ráðuneytinu í dag