Skip to main content
12. febrúar 2026

Færri börn undir 13 ára á samfélagsmiðlum

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Kamilla Inga Ellertsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Svava Pétursdóttir, Elfa Ýr Gylfadóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir og Skúli Bragi Geirdal. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum fór málþingið, Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna fram þriðjudaginn 10. febrúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Samkvæmt glænýjum niðurstöðum rannsóknarinnar, Börn og netmiðlar, samstarfs Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Menntavísindasviðs HÍ eru mörg dæmi þess að verið sé búa börnum á Íslandi heilbrigðara umhverfi á netinu. Til dæmis eru: 

  • Færri börn undir 13 ára eru á samfélagsmiðlum. Hlutfall barna 9-12 ára á samfélagsmiðlum eins og t.d. TikTok, Instagram og Snapchat heldur áfram að lækka.     Hins vegar fjölgar úr þessum hópi á Roblox sem virðist sigla undir radarinn.  
  • Stafræn kynferðisleg áreitni (eins og sendingar og beiðnir um nektarmyndir) heldur áfram að lækka. 

Á málþinginu voru kynntar nýjustu niðurstöður úr landskönnuninni, Börn og netmiðlar meðal 9 - 18 ára grunn- og framhaldsskólanema (fyrirlögn haustið 2025). Fjallað var um samfélagsmiðlanotkun ungmenna, áreiti og netöryggi, og notkun og viðhorf til gervigreindar. Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ kynnti jafnframt niðurstöður úr rannsókn um snjallsímanotkun og reglur í skólum, byggða á viðtölum við kennara og nemendur í 5. og 9. bekk. Tvö ungmenni á vegum Samfés, Sindri Steinn Unnarsson og Kamilla Inga Ellertsdóttir lýstu sinni upplifun af stafrænum heimi og ræddu m.a. um símabann í skólum. Að lokum fóru fram pallborðsumræður. 
Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi, og var þessi viðburður unnin í samstarfi við Netvís – Fjölmiðlanefnd í tilefni af Netöryggisdeginum 10. febrúar. Nánar um fyrirlestraröð Menntavísindasviðs EFST Á BAUGI  

Viðburðurinn var í beinu streymi og nálgast má upptöku hér 
 

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Kamilla Inga Ellertsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Svava Pétursdóttir, Elfa Ýr Gylfadóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir og Skúli Bragi Geirdal. MYND/Kristinn Ingvarsson