Skip to main content

Samskiptasáttmáli HÍ

Háskóli Íslands aðalbygging

Leiðarljós um farsæl samskipti í háskólasamfélagins

Samskiptasáttmáli Háskóla Íslands er leiðarljós um góð samskipti innan háskólans og aðferð við að stuðla að jákvæðum, uppbyggilegum og faglegum samskiptum á milli nemenda, starfsfólks í stjórnsýslu, kennara, rannsakenda, gesta og verktaka háskólasamfélagsins.


Viðbrögð

Samskiptaörðugleikar eru af misjöfnum toga og misalvarlegir, auk þess sem upplifun einstaklinga og viðbrögð við atvikum geta verið ólík. Hér fyrir neðan er listi yfir viðbrögð sem starfsfólk og nemendur geta gripið til ef þau upplifa óæskileg samskipti og þau úrræði sem háskólinn hefur sett sér þegar starfsfólk upplifir einelti, ofbeldi, kynbundið áreiti/ofbeldi eða kynferðislegt áreiti/ofbeldi.

Úrræði fyrir starfsfólk

Úrræði fyrir nemendur

Aðrar leiðir til þess að nota sáttmálann

  • Í ráðningarviðtölum 
  • Í ráðningarsamningum
  • Við móttöku nýs starfsfólks
  • Í starfsmannasamtölum 
  • Í samtölum stjórnenda við starfsfólk vegna samskiptaörðugleika 
  • Í nemendakönnunum  
  • Í samningum við verktaka