
Skipulagsmál Háskóla Íslands hafa lengi verið í brennidepli hjá Háskólanum. Unnið var að gerð rammaskipulags sem var lokið árið 2015 og árið 2019 var kynnt framtíðarsýn fyrir háskólasvæðið. Í framhaldinu var skipulagsnefnd Háskóla Íslands falið að móta heildarsýn fyrir háskólasvæðið sem kynnt var 2021. Það verkefni var unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg með aðstoð Orra Steinarssonar og félaga hjá JVST og Juurlink+Geluk. Sömu aðilum var svo falið að útfæra framtíðarsýnina enn frekar og úr því varð til heildstæð Þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands sem kom út í desember 2024. Að gerð þróunaráætlunarinnar komu fjölmargir hagaðilar auk þeirra sem taldir eru upp hér á undan. Einnig lét Reykjavíkurborg framkvæma samgöngumat fyrir umferð á háskólasvæðinu og nágrenni Háskóla Íslands. Þróunaráætlunina má skoða hér neðst á síðunni.
Hvað er þróunaráætlun?
Þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands er stefnumótandi heildarsýn og leiðbeinandi skipulagstæki fyrir hagaðila um samræmingu, hönnun og útfærslu byggðar og umhverfis. Þróunaráætlunin skilgreinir megináherslur og heildaryfirbragð fyrir einstaka hluta afmarkaðs svæðis sem verður síðan endanlega útfærð í formlegu deiliskipulagi. Samhliða þróunaráætluninni vann Reykjavíkurborg samgöngumat sem skýrir mikilvægi bílastæðastefnu og Borgarlínu til að ná meginmarkmiðum þróunaráætlunarinnar um grænt og sjálfbært háskólasvæði.
Háskóla„kampus“ mikilvægur áningastaður í hjarta borgarinnar
Markmið þróunaráætlunarinnar er að skapa heildstæðan og fallegan háskólagarð í hjarta borgarinnar. Skerpt er á séreinkennum Vatnsmýrarinnar og staðarandi nýttur til að gera þeim umhverfisverðmætum sem fyrir eru hátt undir höfði. Vistvænar samgöngur verða efldar með komu Borgarlínunnar og auðkenndum göngu- og hjólastígum sem tengja betur byggingar á svæðinu og tengja jafnframt háskólasvæðið betur við Vesturbæ, miðbæ og Skerjafjörð. Almenningsrýmin munu nýtast háskólaborgurum og öllum borgarbúum t.d. við heilsueflingu, útivist, kennslu og rannsóknir. Heildarsýn þróunaráætlunarinnar miðar að því að efla Háskóla Íslands og háskólasamfélagið, ásamt því að styrkja Reykjavík sem háskólaborg.
Mikilvægur liður í sjálfbærri borg (Heimsmarkmið 11 – Sjálfbærar borgir og samfélög)
Háskólasvæðið veitir innblástur fyrir samkeppnishæft, lífvænlegt, réttlátt og fjölbreytt borgarsamfélag, ásamt því að styðja við markmið Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og ríkisins um kolefnishlutleysi, vernd náttúrusvæða og líffræðilega fjölbreytni.
Heildarmynd af Þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands
