Skip to main content
13. janúar 2025

Vísindafólk HÍ og HA leitar þátttakenda fyrir Heilsuferðlagið

Vísindafólk HÍ og HA leitar þátttakenda fyrir Heilsuferðlagið - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindafólk við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri er að ýta úr vör þriðju lotu rannsóknar ætlað er að varpa ljósi á langtímaþróun á heilsufarstengdum þáttum frá unglingsaldri til fullorðinsára. Það leitar nú að þátttakendum á höfuðborgarsvæðinu, sem fæddir eru árið 1988 og tóku þátt í fyrri lotum rannsóknarinnar.

Framhaldsrannsóknin sem nú er hafin nefnist Heilsuferðalagið: Langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988. Hún er framhald af rannsóknum sem framkvæmdar voru árin 2003-2004 (Lífsstíll 9 og 15 ára Íslendinga) og 2011-2012 (Atgervi ungra Íslendinga) af rannsóknarteymi frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Úrtak rannsóknarinnar var af höfuðborgarsvæðinu (65%) og frá Akureyri, Egilsstöðum og Húsavík (35%) og voru þátttakendur í heild um 350.

Í þessari rannsókn verður leitað til sömu einstaklinga og tóku þátt í fyrri tveimur rannsóknum, fólks sem er fætt árið 1988 og verður því 37 ára á þessu ári.

  •  Markmiðið er að skoða breytingar á andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu við 37 ára aldur.
  • Með því að rannsaka tímabilið frá unglings- til fullorðinsára gefst einstakt tækifæri til að skilja hvernig almennt heilsufar, andleg líðan, félagslegur stuðningur, þrek, hreyfing og svefn tengjast og móta heilsu á fullorðinsárum.
  • Þetta mun vera ein af fyrstu rannsóknum á Íslandi þar sem langtímaþróun á heilsufarstengdum þáttum frá unglingsaldri til fullorðinsára er skoðuð ítarlega. 

Biðla til fólks sem tók þátt í fyrri rannsóknum

Þriðja gagnasöfnunarferli þessarar viðamiklu rannsóknar hófst í haust, en byrjað var að finna þátttakendur á Akureyri, Húsavík og Egilsstöðum. Núna í byrjun janúar verður farið að leita þátttakenda á  höfuðborgarsvæðinu. Stjórnendur rannsóknarinnar vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í þessari framhaldsrannsókn en þetta er lokaáfangi rannsóknarinnar og ekki verður haft samband við þátttakendur framar.

 

Tveir af aðstandendum rannsóknarinnar, Nanna Ýr Arnardóttir, lektor við HA og verkefnastjóri á Akureyri, og Erlingur Jóhannsson, prófessor við HÍ, og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar. MYND/Kristinn Ingvarsson
 

„Við biðlum því til þeirra sem fæddir eru árið 1988 og tóku þátt í fyrri gagnasöfnun, það er árið 2003/2004 eða árin 2011/2013 eða í bæði umrædd skipti, að vera áfram með okkur í þessari vegferð. Allir sem taka þátt fá gjöf þegar þau mæta í mælingar, upplýsingar úr heilsufarsmælingum og eiga möguleika á útdráttarverðlaunum. Þeir sem ljúka öllum verkþáttum fá gjafakort að launum,“ segja stjórnendur rannsóknarinnar.

Sterkur hópur rannsakenda og öflugir samstarfsaðilar

Mjög faglega sterkur alþjóðlegur rannsóknarhópur stendur á bak við verkefnið en hann samanstendur af aðilum frá Háskóla Íslands (HÍ), Háskólanum á Akureyri (HA), tveimur háskólum í Bergen í Noregi, vísindamönnum hjá Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna og Háskólanum í Porto í Portúgal. Frá HÍ koma að verkefninu þau dr. Erlingur Jóhannsson prófessor og dr. Sunna Gestsdóttir dósent, dr. Elvar Smári Sævarsson og dr. Ársæll Már Arnarsson prófessor og frá HA dr. Nanna Ýr Arnardóttir lektor. Tveir doktorsnemar vinna að verkefninu, þær Kristrún María Björnsdóttir, íþróttafræðingur og doktorsnemi við HA, og Sæunn Rut Sævarsdóttir, lýðheilsufræðingur og doktorsnemi við HÍ.

Rannsóknin er unnin í samstarfi við fjölmarga aðila í heilbrigðis- og menntakerfinu. Þessar stofnanir eru m.a. Hjartavernd í Kópavogi, Sjúkrahúsið á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Heilbrigðisstofnun Austurlands. Rannsóknarsjóður Íslands og rannsóknarsjóðir HÍ og HA styrkja verkefnið auk fyrirtækja, þar á meðal Bílaleiga Akureyrar-Höldur, VÍS tryggingar hf. og ÓSAR – lífæð heilbrigðis hf. 

Nánari upplýsingar um rannsóknina.

Doktorsnemarnir Kristrún María Björnsdóttir og Sæunn Rut Sævarsdóttir voru við undirbúning rannsóknarinnar í rannsóknarstofu í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands í Laugardalshöll í liðinni viku en með þeim á myndinni er Sigurður Skúli Benediktsson, aðjunkt við HÍ, og Ingibjörg Rúnarsdóttir sem er á hlaupabrettinu.