Skip to main content

Reglur nr. 1310/2024

Reglur um gjaldskrá vegna leigu á kennslustofum og annarri aðstöðu í byggingum Háskóla Íslands, nr. 1310/2024

Pdf-útgáfa

1. gr. Gjaldskrá Íþróttahúss Háskóla Íslands

Húsið er opið mánudaga til fimmtudags kl. 7:00 til kl. 22:00; föstudaga kl. 07:00 til kl. 20:00 og laugardaga kl. 08:00 til kl. 18:00. Lokað er á sunnudögum.

Gjald vegna árskorta              12.000 kr.
Leiga á sal                             3.000 kr. í 45 mín. á dagtíma, kl. 7:00 til kl. 17:00.
Leiga á sal                             4.000 kr. í 45 mín. á kvöldin kl. 17:00 til kl. 22:00 (til kl.20:00 á laugardögum).

Grunnur að gjaldskránni er kostnaður við rekstur Íþróttahúss háskólans. Gjöldin standa undir hluta af kostnaði sem til fellur vegna umsjónar og umsýslu húsnæðis, endurnýjunar á búnaði og greiðslna fyrir kennslu í húsinu o.fl.

2. gr. Leiga á kennslustofum og annarri aðstöðu í byggingum Háskóla Íslands

Gjaldskrá vegna leigu á kennslustofum. Miðað er við fyrstu 2 klst. sem stofur eru leigðar.

Fjöldi sæta               Grunngjald                 Hver klst. umfram 2
19 eða færri                 9.200 kr.                    3.500 kr.
2029                       11.500 kr.                    4.600 kr.
3039                       13.800 kr.                    5.800 kr.
4059                       16.100 kr.                    6.900 kr.
6089                       23.000 kr.                    9.200 kr.
90119                      28.800 kr.                   11.500 kr.
120149                    33.000 kr.                   10.000 kr.
150200                   40.500 kr.                    13.800 kr. þ.m.t. Hátíðasalur
201300                   52.000 kr.                    17.300 kr.

Ef bókun er vegna starfsemi á vegum Háskóla Íslands er veittur 25% afsláttur frá gjaldskrá. Bókanir um helgar bera 20% álag.

Grunnur að gjaldskránni eru laun, kostnaður við umsýslu, rekstur húsnæðis, öryggis­gæslu, ræstingu o.þ.h. Gjöldin standa undir hluta af kostnaði sem til fellur vegna útleigu.

3. gr. Leiga á aðstöðu í byggingum Háskóla Íslands til kvikmyndatöku

Gjaldskrá vegna leigu á aðstöðu í byggingum háskólans til kvikmyndatöku. Leiga fyrir allt að 4 klst. er 60.000 og 100.000 kr. fyrir allt að 8 klst. Umsjónarmaður verður á svæðinu sem sinnir eftirliti með vinnu við tökur ásamt því að veita aðgang að umbeðnum rýmum og lítils háttar aðstoð sem viðkemur húsnæðinu. Útleiga er háð samþykki rektorsskrifstofu hverju sinni.

Grunnur að gjaldskránni eru laun, kostnaður við umsýslu, rekstur húsnæðis, ræstingu o.þ.h. Gjöldin standa undir hluta af kostnaði sem til fellur vegna útleigu.

4. gr. Veislusalur í Litla torgi

Fastráðnum starfsmönnum Háskóla Íslands og tengdum stofnunum gefst kostur á að leigja Litlatorg fyrir einkasamkvæmi til kl. 21:00 á virkum dögum og til kl. 17:00 á laugardögum. Ef óskað er eftir leigu utan opnunartíma bygginga þarf að greiða fyrir opnun og lokun á byggingu.  Leiga fyrir allt að 4 klst. er 40.000 og 80.000 kr. fyrir allt að 8 klst. 

Grunnur að gjaldskránni eru laun, kostnaður við umsýslu, rekstur húsnæðis, öryggis­gæslu, ræstingu o.þ.h. Gjöldin standa undir hluta af kostnaði sem til fellur vegna útleigu.

5. gr. Fræðimanna- og gestaherbergi í Sögu

Einfalt herbergi 25m2                                             7.500 kr. nóttin.
Herbergi með eldhúsi 25m2                                    9.500 kr. nóttin.
Herbergi með eldhúsi og samtengdu herbergi         12.750 kr. nóttin.

Ef bókun er vegna notkunar á vegum fræðasviða Háskóla Íslands er veittur 25% afsláttur frá gjaldskrá. Fast þjónustugjald 7.500 kr. fylgir hverri bókun. Herbergi eru þrifin eftir brottför, en ekki á meðan á dvöl stendur.

Önnur gjöld:
Gjald ef afbókað er með minna en 7 daga fyrirvara           Þrjár nætur greiddar.
Síðbúin brottför                                                             Greitt fyrir eina nótt.
Aukin þrif fyrir lengri dvöl (þ.m.t. hrein handklæði og rúmföt)         7.500 kr.
Útkall (ef gestur læsir sig úti utan vinnutíma umsjónarmanna HÍ)       9.000 kr.

Grunnur að gjaldskránni eru laun, kostnaður við umsýslu, rekstur húsnæðis, öryggisgæslu, ræstingu o.þ.h. Gjöldin standa undir hluta af kostnaði sem til fellur vegna útleigu.

6. gr. Upplýsingar og leiðbeiningar.

Upplýsingar og leiðbeiningar um bókanir, almennan opnunartíma bygginga, bókanir á kennslustofum og annarri aðstöðu í byggingum HÍ, húsreglur, staðsetningu bygginga o.fl. er að finna á vefsvæði Háskóla Íslands undir fyrirsögninni „Húsnæði og aðstaða.“

Leigugreiðslur frá aðilum utan Háskóla Íslands skulu vera fjárhagslega afmarkaðar frá öðrum rekstri húsnæðis og þess gætt að sú þjónusta sem veitt er sé ekki niðurgreidd með öðrum tekjum. Gjaldtaka fyrir útleigu á stofum og annarri aðstöðu í byggingum háskólans, samkvæmt þessum reglum, til aðila utan háskólans skal taka mið af almennu markaðsverði sambærilegra leigukosta. Um stjórnunar- og aðstöðugjald fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

7. gr. Um greiðslu virðisaukaskatts

Ekki skal lagður virðisaukaskattur á útleigu á sal í Íþróttahúsi Háskóla Íslands. Útleiga á kennslustofum/aðstöðu í byggingum HÍ til starfsmanna og nemenda vegna kennslu- og menntastarfsemi skal vera án virðisaukaskatts. Virðisaukaskattur leggst hins vegar á útleigu á kennslustofum/aðstöðu í byggingum HÍ til nemenda og kennara sem ekki tengist kennslu- og menntastarfsemi. Virðisaukaskattur leggst á útleigu á fræðimanna- og gestaherbergjum í Sögu. Virðisaukaskattur leggst á útleigu á aðstöðu í byggingum Háskóla Íslands til aðila utan skólans.

8. gr. 

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 11. nóvember 2024.