Vigdísarverðlaunin 2024 afhent
Veröld - Hús Vigdísar
fyrirlestrarsalur
Asifa Majid, sálfræðingur, málfræðingur og prófessor í hugrænum vísindum við Oxford-háskóla, hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 fyrir rannsóknir sínar á tengslum tungumáls, menningar og hugsunar.
Verðlaunin verða afhent í Veröld, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 22. október 2024 kl. 15:00 og mun Majid flytja erindi af því tilefni.
Viðburðurinn fer fram á ensku og verður jafnframt streymt. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá
15:00 — Gestir boðnir velkomnir
15:10 — Afhending Vigdísarverðlauna
15:20 — Fyrirlestur Majid: Understanding the mind in the face of cultural and linguistic diversity
15:50 — Léttar veitingar bornar fram í Loftskeytastöðinni við hlið Veraldar, þar sem nú stendur yfir sýning um ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur
Asifa Majid, sálfræðingur, málfræðingur og prófessor í hugrænum vísindum við Oxford-háskóla, hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 fyrir rannsóknir sínar á tengslum tungumáls, menningar og hugsunar. Verðlaunin verða afhent í Veröld, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 22. október 2024 kl. 15:00 og mun Majid flytja erindi af því tilefni.