Skip to main content

Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám - Grunndiplóma

Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám - Grunndiplóma

Hugvísindasvið

Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám

Diplómapróf – 60 einingar

Eins árs nám fyrir nemendur með litla færni í íslensku.

Umsóknarfrestur er til 20. maí fyrir umsækjendur sem eru búsettir á Íslandi og hafa íslenska kennitölu.

Skipulag náms

X

Orðaforði og málfræði I (ÍSE002G)

Megináhersla verður lögð á uppbyggingu orðaforða og færniþættina tvo: tal og ritun. Farið verður í ýmis málnotkunar- og málfræðiatriði, s.s. kyn, aukafallssagnir, merkingu nokkurra sagnasambanda og beygingu nokkurra sagna. Í námskeiðinu verður byggður upp daglegur orðaforði íslensku. Orðaforðinn verður æfður munnlega og skriflega með verkefnum í kennslustundum og heimavinnu. Málfræðiatriði verða tekin fyrir í samhengi við orðaforðann og umræðuefnin.

X

Tal og tjáning I (ÍSE030G)

Námskeiðið er ætlað byrjendum í íslensku. Í námskeiðinu eru nemendur þjálfaðir í samskiptum á íslensku og skilningi á mæltu máli s.s. að hefja samtal og ljúka því, kynna sig, biðja um þjónustu eða aðstoð. Kynntir verða einfaldir frasar sem þarf til að bjarga sér í daglegu lífi. Nemendur vinna verkefni í svokölluðu Íslenskuþorpi og úti í samfélaginu um leið og þeir sinna daglegum erindum sínum. Nemendur vinna ýmist einir eða í litlum hópum með samtöl og stuttar framsögur í kennslustundum og úti í samfélaginu.  

X

Hljóð og hlustun I (ÍSE032G)

Farið er í grundvallaratriði íslensk hljóðkerfis. Framburður sérhljóða og samhljóða er markvisst æfður, sem og framburður algengra samhljóðaklasa. Þá eru kynntar helstu reglur um framburð í samfelldu tali sem og reglur um áherslu og tónfall. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings og framburðarverkefnum, innan og utan kennslustofu.

X

Inngangur að sögu Íslands (SAG036G)

Þetta yfirlitsnámskeið er ætlað til að kynna nemendur fyrir sögu Íslands frá landnámi á níundu öld til nútímans og veita yfirlit yfir atburði og þróun á þessu langa tímabili. Pólitískar, félagslegar, efnahagslegar og menningarlegar hliðar munu fjalla um lykilþemu. Þar með talið eru landnám Íslands í samhengi við víkingaútþenslu; heiðni og uppgang kristni; siðbreytingin og styrking danska konungsríkisins; umhverfi og fólksfjölgunarkreppur fyrir iðnvæðingu; áhrif upplýsingarinnar; upprisa þjóðernishyggju og myndun þjóðríkis; breytingin frá bændasamfélagi til iðnsamfélags; áhrif kalda stríðsins; 'þorskastríðin'; kvennahreyfingin; hnattvæðing og fjármálakreppan 2008.

Markmið námskeiðsins er að búa nemendur almennri þekkingu á sögu Íslands auk þess að kynna þeim fyrir sumum af miðlægum umræðuefnum sem endurspegla lykilspurningar rannsókna, aðferðafræði og túlkunar.

Námskeiðið er ekki ætlað fyrir íslenska nemendur.

X

Being Icelandic: Icelandic Folktales, Beliefs and Popular Culture Past and Present (ÞJÓ004G)

(Kennt á ensku; aðeins fyrir erlenda nemendur.) The aim of this course is to introduce foreign students to Icelandic folk culture past and present: from the folk beliefs implied by the Icelandic sagas to the famous collection of folk tales concerning "hidden people", elves, magicians, seal-folk, ghosts and more which was published by Jón Árnason in 1862-64; the ballads and music enjoyed by the people in the countryside; and the beliefs, behaviour and lifestyles encountered by the somewhat dumbfounded and awe-inspired early foreign travellers to Iceland during the last century. Students will also be introduced to modern Icelandic traditions and beliefs, from the Christmas men to the "elf stones" that road builders avoid, to the eating of sheeps heads, and the continual interest in the supernatural. The course is not intended for Icelandic students.

Vinnulag
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

X

Icelandic Nature and Cultural Legacy (MEX020G)

Náttúra Íslands
Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

Menningararfur
Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

X

Sjálfsnám í íslensku I (ÍSE001G)

Í námskeiðinu verður unnið með grunnatriði í málfræði, hlustun og hlustunarskilning auk lesturs og orðaforða. Námskeiðið er nemendastýrt með stuðningi kennara og stjórna nemendur efnisvali og markmiðum að hluta í samráði við hann. Nemendur styðjast við gagnvirka vefkennsluefnið Icelandic Online 1 plús og velja sér að auki efni með tilliti til ákveðins færniþáttar sem þeir vilja leggja sérstaka áherslu á, þ.e. málfræði, hlustun eða orðaforða. Nemendur sækja kennslustundir þar sem þeir fá tækifæri til að spyrja spurninga og æfa það sem þeir hafa lært.

X

Íslensk menning (ÍSE014G)

Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

X

Orðaforði og málfræði II (ÍSE007G)

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE002G, Orðaforði og málfræði I. Megináhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu orðaforða með lestri og ritun. Lesnir verða textar um efni sem varða daglegt líf og málnotkun, orðaforði og málfræði þjálfuð í tengslum við þá. Grunnatriði íslenskrar málfræði eru kynnt og þjálfuð áfram, s.s. sagnbeyging í nútíð og þátíð og kyn og beyging fallorða.

X

Tal og tjáning II (ÍSE031G)

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið námskeiðinu ÍSE030G, Tal og tjáning I. Nemendur lesa stutta texta heima sem varða daglegt líf og ræða efni þeirra í litlum hópum í kennslustundum. Nemendur flytja einnig kynningar um valin efni fyrir framan bekkinn. Umræður fara fram í litlum hópum og innan hópsins í heild. Kennslustundir eru einnig notaðar til þess að undirbúa nemendur fyrir samskipti utan kennslustofunnar.

X

Hljóð og hlustun II (ÍSE033G)

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE032G, Hljóð og hlustun I. Tiltekin framburðaratriði eru skýrð og þjálfuð, einkum samhljóðaklasar og framburður sérhljóða á undan ákveðnum samhljóðum. Algeng brottföll og breytingar hljóða í samfelldu tali eru tekin fyrir. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings- og framburðarverkefnum innan og utan kennslustofunnar.

X

Icelandic Nature and Cultural Legacy (MEX020G)

Náttúra Íslands
Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

Menningararfur
Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

X

Norræn trú (ÞJÓ437G)

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

X

Sjálfsnám í íslensku II (ÍSE009G)

Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu ÍSE001G Sjálfsnámi í íslensku I. Í því verður unnið frekar með málfræði, hlustun og hlustunarskilning auk lesturs og orðaforða. Námskeiðið er nemendastýrt undir umsjón kennara og stjórna nemendur efnisvali og markmiðum að hluta í samráði við hann. Nemendur styðjast við gagnvirka netkennsluefnið Icelandic Online 2 plús og velja sér að auki efni með tilliti til ákveðins færniþáttar sem þeir vilja leggja frekari rækt við, þ.e. málfræði, hlustun eða lestur/orðaforða. Nemendur sækja kennslustundir þar sem þeir fá tækifæri til að spyrja spurninga og æfa það sem þeir hafa lært.

X

Íslensk menning (ÍSE014G)

Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2

Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.

Fylgstu með Hugvísindasviði:

Háskóli Íslands - aðalbygging

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.