20. mars 2023
Ársskýrsla Stofnunar rannsóknasetra 2022
Ársskýrsla Stofnunar rannsóknasetra vegna ársins 2022 er komin út. Í ársskýrslunni er birt yfirlit um starfsemi Stofnunar rannsóknasetra og hvað bar hæst á árinu hjá hverju setri fyrir sig. Setrin eru nú tíu talsins auk þess sem starfsemi er á vegum stofnunarinnar í Vestmannaeyjum.