Skip to main content
22. desember 2022

Varði doktorsritgerð um málnotkun Íslendinga á netinu

Varði doktorsritgerð um málnotkun Íslendinga á netinu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vanessa Isenmann hefur varið doktorsritgerð sína í íslenskri málfræði, Icelandic digital practices on Facebook: Language use in informal online communication, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Kristjáns Árnasonar, prófessor emeritus við Íslensku- og menningardeild, en með honum í doktorsnefnd voru þau Ari Páll Kristinsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, og Jannis Androutsopoulos, prófessor við Háskólann í Hamburg í Þýskalandi. 

Andmælendur við vörnina voru Helga Hilmisdóttir, rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar, og Andreas Stæhr, dósent við Kaupmannahafnarháskóla. Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 21. desember. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Doktorsritgerð Vanessu kannar málnotkun Íslendinga á netinu. Nánar tiltekið er fjallað um málnotkun í óformlegum samskiptum á Facebook með tilliti til hvata fólks í vali á tungumáli og málsniði, en einnig er hugað að viðhorfum málnotenda til óformlegrar málnotkunar á netinu. Markmið verkefnisins er að skoða hvaða leiðir málhafar nota til tjáningar á Facebook og af hverju. Í brennidepli rannsóknarinnar er form, hlutverk og félagsmálfræðilegt gildi íslensku í óformlegum netsamskiptum. Rannsóknin er sérstaklega tímabær í ljósi þess að  breytingar virðast eiga sér stað um þessar mundir í málumhverfi og málvenjum meðal (ungra) Íslendinga, ekki síst í stafrænum miðlum, en það hefur vakið áhyggjur um veika stöðu íslenskunnar í stafrænu umhverfi.

Um doktorsefnið

Vanessa Monika Isenmann lauk BA gráðu í þýskri málfræði og norðurlandafræði frá Humboldt háskóla í Berlín árið 2008 og meistaraprófi í þýsku sem erlendu tungumáli (Deutsch als Fremdsprache) frá sama háskóla árið 2011. Hún starfar nú sem aðjúnkt í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

Ari Páll Kristinsson, Gauti Kristmannsson, Vanessa Isenmann, Helga Hilmisdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs og Kristján Árnason.

Ari Páll Kristinsson, Gauti Kristmannsson, Vanessa Isenmann, Helga Hilmisdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs og Kristján Árnason.