Nemendur eiga kost á að sækja um styrki fyrir stökum námskeiðum í gegnum Erasmus+ og Nordplus áætlanirnar og Aurora-samstarfið. Með því að bjóða upp á möguleika á styttri námsdvölum geta fleiri nemendur nýtt sér að taka hluta af náminu erlendis.Opið er fyrir umsóknir um styttri námsdvalir allan ársins hring. Nemendum ber að skila umsóknum fyrir tilgreindan frest í tilfellum sem það á við. Hvernig sækir þú um? 1. Sækja um tilnefningu (ef við á) Flestir sækja fyrst um tilnefningu í námskeið í gegnum Uglu Ef móttökuskóli gerir ekki kröfu um tilnefningar, sækir þú beint um hjá skólanum sjálfum 2. Sækja um styrk Þegar umsókn í námskeið hefur verið samþykkt er næsta skref að sækja um styrk í Uglu 3. Mikilvægt að hafa í huga Tilgreindu námskeiðið sem þú sækir um í athugasemdarglugga í rafrænu umsókninni Ef þú sækir um fleiri en eitt námskeið þarftu að tilgreina forgangsröðun Ef þú ert þegar komin/n með samþykki í námskeið skaltu hengja samþykktarbréfið við umsóknina Sækja um Umsóknarfrestir Opið er fyrir umsóknir allt árið Athugaðu að sum námskeið hafa sérstaka fresti Ef þú sækir um á eigin vegum getur Alþjóðasvið ekki ábyrgst afgreiðslu umsókna sem berast síðar en sex vikum fyrir upphaf námskeiðs/kennslu. Sendu tölvupóst til að fylgja umsókninni eftir á shortmobility@hi.is Skilyrði Nemandi þarf að vera skráður við Háskóla Íslands og hafa greitt skráningargjöld við skólann. Skiptinemar eða aðrir gestanemar við Háskóla Íslands geta ekki sótt um. Nemendur á öllum námsstigum þurfa að vera virkir í námi við HÍ og geta ekki farið í styttri námsdvöl þar sem kennslu lýkur eftir brautskráningu. Samstarfssamningur verður að vera fyrir hendi milli HÍ og gestaskóla. Samningurinn þarf ýmist að vera opinn, vera í fagi nemandans eða hafa skýra tengingu við nám nemanda. Nemendur í grunnnámi geta aðeins sótt um styrk ef þeir eru skráðir í a.m.k. 90 ECTS námsleið. Grunnnemar verða að hafa lokið 30 ECTS áður en námsdvöl hefst. Nemendur í framhaldsnámi geta aðeins sótt um styrk ef þeir eru skráðir í a.m.k. 60 ECTS námsleið. Ekki er gerð krafa um loknar einingar. Deild þarf að veita samþykki fyrir námsdvöl erlendis. Með því að samþykkja umsókn nemanda er deild ekki að samþykkja sjálfkrafa að námskeiðið verði metið við HÍ. Ef deild hefur viðbótarskilyrði vegna styttri dvala erlendis verður nemandi að uppfylla þau skilyrði áður en námsdvölin hefst. Grunn- og meistaranemar geta einungis hlotið einn styrk fyrir styttri dvöl á skólaári. Doktorsnemar geta hlotið einn styrk fyrir styttri dvöl á misseri og að hámarki fimm yfir námsferilinn. Athugið að ef farið er í námsdvöl á lokamisseri náms gæti þurft að seinka brautskráningu þar sem sumir gestaskólar skila staðfestu einkunnayfirliti eftir brautskráningafrest HÍ. Miðað er við að nemendur hafi meðaleinkunn 6,0 eða hærri. Ef móttökuskóli hefur kröfu um hærri meðaleinkunn þá er farið eftir því. Nemandi getur ekki farið styttri dvöl meðan á annarri skiptinámsdvöl eða starfsþjálfunardvöl sem skipulögð er í gegnum Alþjóðasvið stendur. Ef ferðast er frá landi öðru en Íslandi er nemanda skylt að upplýsa Alþjóðasvið um það. Ferðastyrkur reiknast miðað við ferðalag nemanda frá því landi sem ferðast er en að hámarki er hægt að veita upphæð sem jafnast á við þann styrk sem veittur hefði verið ef ferðast hefði verið frá Íslandi. Ekki er hægt að styrkja námsdvöl sem fer fram í sama landi og nemandi er búsettur í. Ef nemandi sækir um námskeið á eigin vegum sem Háskóli Íslands hafði auglýst með tilteknum tilnefningarfresti getur Alþjóðasvið ekki ábyrgst að hægt verði að styrkja dvölina eða falla frá skólagjöldum, eigi það við. Ef nemandi hefur hlotið vilyrði fyrir styrk í annað námskeið á sama skólaári (grunn- og meistaranemar) eða sama misseri (doktorsnemar) eru nemendur lægst í forgangsröð og geta ekki hlotið styrk fyrir dvöl. Nemendur við Háskóla Íslands eiga þess kost að sækja um styrki fyrir námsdvöl erlendis úr ýmsum sjóðum. Hver dvöl má ekki vera styrkt af fleiri en einum styrktarsjóði. Nemandi getur fengið styrk oftar en einu sinni á meðan á háskólanámi stendur, t.d. fyrir skiptinámi, starfsþjálfun og/eða stökum námskeiðum. Heildarfjöldi styrktra mánaða í Erasmus+/Aurora getur þó ekki farið umfram 12 mánuði á hverju námsstigi. Nemandi sem tekur þátt í blandaðri námsdvöl, þar sem hluti fer fram sem fjarnám á netinu, getur einungis fengið styrk vegna þess hluta sem fer fram á staðnum hjá gestastofnun erlendis. Það er á ábyrgð nemenda að bera námskeið undir alþjóðatengilið sinnar deildar til að kanna möguleika á einingamati. Sérstök skilyrði sviða og deilda Félagsvísindasvið Lagadeild Nemendur í grunnnámi við Lagadeild geta tekið stök námskeið við erlenda samstarfsskóla. Námsdvölin getur þó ekki verið metin til gráðu við HÍ. Nemendur á meistarastigi þurfa að sækja sérstaklega um að fá stök námskeið metin í námsferil sinn. Umsókn er send til náms- og kennslunefndar Lagadeildar þar sem mikilvægt er að skila inn námskeiðslýsingu (kennsluyfirliti þar sem fram kemur lesefni, kennsluáætlun og námsmat). Viðskiptafræðideild Ekki er heimilt að taka námskeið sem er sambærilegt námskeiði sem nemandi hefur lokið, eða mun ljúka við HÍ eftir námsdvölina. Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál Nemendur sem lokið hafa 60ECTS í grunnnámi (BA-gráðu) geta sótt um að fara í styttri skiptinámsdvöl (5-30 daga). Nemendur þurfa að ráðfæra sig við formann námsbrautar um val á námskeiði áður en sótt er um skiptinám í gegnum umsóknargátt í Uglu (innri vef). Forgangsröðun umsókna Markmið Alþjóðasviðs er að gera sem flestum nemendum kleift að fara í námsdvöl erlendis en jafnframt að samstarfssamningar nýtist sem best. Alþjóðasvið áskilur sér rétt til að skipta plássum við gestaskóla milli nemenda og jafnframt að hafna umsóknum teljist nemandi ekki uppfylla kröfur viðkomandi námskeiðs. Þurfi að velja á milli nemenda sem sótt hafa um sama námskeið gilda eftirfarandi reglur: 1. Gildar umsóknir sem berast fyrir auglýstan umsóknarfrest hafa forgang. Umsókn telst ekki gild fyrr en öll fylgigögn hafa borist. 2. Umsækjendur sem hafa farið áður í styttri dvöl á sama námsferli njóta ekki forgangs. Þessi regla á ekki við ef umsækjandi hefur hafið annan námsferil, t.d. í meistara- eða doktorsnámi. Því oftar sem nemendur hafa hlotið styrk á sama námsstigi, því neðar eru þeir í forgangi. 3. Nemendur á auglýstu námsstigi námskeiðs njóta forgangs. 4. Sé námskeið opið öllum námsstigum njóta meistaranemar forgangs fram yfir grunnnema. Doktorsnemar eru ekki í forgangi við úthlutun plássa í námskeiðum sem auglýst eru opin á öllum námsstigum. 5. Ef umsækjendur eru á sama námsstigi gildir eftirfarandi: Ef munar minna en 30 ECTS á loknum einingum ráða einkunnayfirlit og árangursröðun úrslitum. Ef einkunnir eru sambærilegar skal varpa hlutkesti milli nemenda í viðurvist votta. Ef munar 30 ECTS eða meira á loknum einingum ráða einkunnayfirlit og árangursröðun einungis úrslitum ef munur á meðaleinkunn milli nemenda er einn heill eða meira (t.d. annar með 6.5 og hinn með 8.0) og verður nemandinn með hærri meðaleinkunn tilnefndur. Ef einkunnir eru sambærilegar skal varpa hlutkesti milli nemenda í viðurvist votta. 6. Ekki er hægt að úthluta meira en helmingi plássa til nemenda á sömu námsleið og á sama námsstigi. Þetta á við þegar pláss við gestaskóla eru fjögur eða fleiri, námskeiðið er þverfaglegt og eftirspurn er umfram fjölda plássa. 7. Ef nemandi hefur hlotið vilyrði fyrir styrk í annað námskeið á sama skólaári (grunn- og meistaranemar) eða sama misseri (doktorsnemar) eru nemendur lægst í forgangsröð og geta ekki hlotið styrk fyrir dvöl Erasmus+ styrkhæf námskeið Nemendur geta sótt um Erasmus+ styrk fyrir stöku námskeiði (5-30 dagar) við samstarfsskóla Háskóla Íslands í Evrópu. Erasmus+ styttri dvalir á grunn- og meistarastigi þurfa að vera blandaðar námsdvalir, þar sem hluti námsins fer fram í staðnámi og hluti þess rafrænt á netinu. Námsdvölin við gestastofnun getur ekki verið styttri en fimm dagar og ekki lengri en 30 dagar. Rafræni hlutinn þarf að fela í sér virka þátttöku nemandans. Einstaklingsvinna eða heimapróf uppfyllir ekki kröfur Erasmus+ um rafrænan hluta. Í tilfelli grunn- og meistaranema þarf námskeið við gestaskóla þarf að veita að minnsta kosti 3 ECTS (samanlagt fyrir staðnáms- og rafræna hlutann). Doktorsnemar geta farið í styttri námsdvöl án þess að taka hluta rafrænt. Í tilfelli doktorsnema skal vinnuálag við námsdvöl erlendis samsvara að minnsta kosti 3 ECTS einingum. Upplýsingar um Erasmus+ námssamninga fyrir styttri dvölum Styrkupphæðir Dvalarstyrkur er 79€ á dag fyrstu 14 dagana, síðan 56€ á dag ef dvölin varir lengur Ferðastyrkur er á bilinu 275-1500€, eftir áfangastað Viðbótarstyrkir Nánari upplýsingar um styrkupphæðir Aurora styrkhæf námskeið Nemendur geta sótt um Aurora styrk fyrir stöku námskeiði eða annarri auglýstri Aurora dvöl (að lágmarki 2 dagar) við einhvern af Aurora skólunum. Ekki er hægt að sækja um Aurora styrk fyrir dvöl við samstarfsskóla (e. Associate Partners) eða alþjóðlegum samstarfsskóla (e. Global Partner). Einungis er hægt að sækja um Aurora styrk fyrir dvölum sem hafa verið birtar á Aurora kennsluskránni eða hafa verið auglýstar í gegnum Háskóla Íslands. Styrkupphæðir Dvalarstyrkur er 79€ á dag fyrstu 10 dagana. Fari dvöl fram í Kaupmannahöfn, París, Tarragona, Amsterdam, Olomouc, Duisburg-Essen eða Innsbruck er ferðastyrkur 395 EUR Fari dvöl fram í Napólí er ferðastyrkur 580 EUR Að hámarki er hægt að styrkja 10 daga með Aurora styrksjóðum, óháð lengd dvalar. Nemandi getur óskað eftir allt að tveimur styrktum ferðadögum til viðbótar við styrkta daga dvalar í þeim tilfellum sem dagskrá býður ekki upp á að ferðast sama dag og kennt er Nemandi getur sótt um inngildingarstyrk ef viðmið Landskrifstofu Erasmus+ eiga við Nordplus styrkhæf námskeið Grunn- og meistaranemar geta sótt um Nordplus styrk til styttri dvalar (5 til 60 dagar) við einn af Nordlys samstarfsskólum HÍ. Dvölin þarf alltaf að tengjast námi nemanda með beinum hætti og vera metin til gráðu. Þá er gerð krafa á að styttri námskeið sem eru lengri en 30 dagar séu metin til ECTS eininga. Nemendur í grunnnámi geta aðeins sótt um styrk ef þeir eru skráðir í a.m.k. 90 ECTS námsleið. Nemendur verða að hafa lokið 30 ECTS áður en námsdvöl hefst. Nemendur í framhaldsnámi geta aðeins sótt um styrk ef þeir eru skráðir í a.m.k. 60 ECTS námsleið. Ekki er gerð krafa um loknar einingar. Doktornemar geta ekki sótt um Nordplus styrki. Nemendur geta til dæmis tekið sumarnámskeið eða lotunámskeið og einnig er hægt að sækja um að taka námskeið við UNIS á Svalbarða. Nemendur sækja sjálfir um námskeið við gestaskóla. Ef gestaskóli gerir kröfu um tilnefningu svo hægt sé að fella niður skólagjöld (við gestaskólann) þá má hafa samband við Alþjóðasvið og kanna hvort hægt sé að veita tilnefningu. Nemendur sem hafa í huga að sækja um námskeið við Svalbarða skulu hafa samband við Alþjóðasvið fyrir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestir um Nordplus styrki fyrir stökum námskeiðum eru tvisvar á ári: 15. apríl - fyrir námskeið í júní-desember 15. nóvember - fyrir námskeið í janúar-maí Hægt er að sækja um eftir umsóknarfrest en í slíkum tilfellum er nauðsynlegt að senda tölvupóst á outgoing.europe@hi.is og láta vita þegar umsókn hefur verið send inn. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki í forgangi fyrir styrk. Með umsókn skal fylgja lýsing á námskeiðinu ásamt vefslóð að vefsíðu skóla þar sem kemur skýrt fram hvernig námskeiðið er sett upp, lengd þess og hversu margar ECTS það veitir. Þá er einnig nauðsynlegt fyrir nemendur að hafa samband við alþjóðatengilið við sína deild til þess að athuga hvort dvölin verði metin inn í námsferil við HÍ. Nemendur verða einnig að hengja við rafrænu umsóknina einkunnayfirlit með röðun (á ensku) en það fæst á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi og í gegnum Ugluna, undir Uglan mín - vottorð og námsferilsyfirlit. Meistaranemar sem eru ekki með neinar einkunnir á meistaranámsferli verða að skila einkunnayfirliti úr grunnnámi með umsókn. Nordplus námssamningur Nemendur þurfa að bera námskeið undir deild sína og fá staðfestingu á hvort hægt verði að meta námskeiðið við Háskóla Íslands. Fyrir brottför þurfa nemendur að skila inn námssamningi. Ef dvöl er styttri en 30 dagar er ekki nauðsynlegt að gera námssamning þó alltaf sé mælt með því. Nordplus námssamning má finna hér. Styrkupphæðir Nordplus styrkurinn fyrir nemendur samanstendur af ferðastyrk að hámarki 660€ og að hámarki 250€ dvalarstyrk á mánuði. Einnig er hægt að sækja um styrk vegna styttri heimsókna, lágmark 5 dagar og er dvalarstyrkur þá 70€ á viku. Skilyrði fyrir þátttöku í stöku námskeiði við samstarfsskóla Nemandi þarf að vera skráður við Háskóla Íslands sem virkur nemandi og hafa greitt skráningargjöld HÍ. Skiptinemar eða aðrir gestanemar við Háskóla Íslands geta ekki sótt um. Gestaskóli þarf að vera aðili að Nordlys samstarfsnetinu. Mikilvægt er að kanna hvort samstarfsskóli setji takmarkanir við ákveðnar námsgreinar. Deild þarf að veita samþykki fyrir námsdvöl erlendis. Með því að samþykkja umsókn nemanda er deild ekki að samþykkja sjálfkrafa að námskeiðið verði metið við HÍ. Ef deild hefur viðbótarskilyrði vegna námskeiðsdvalar verður nemandi að uppfylla þau skilyrði áður en námsdvöl erlendis hefst. Athugið að ef farið er í námsdvöl á lokamisseri náms gæti þurft að seinka brautskráningu þar sem sumir gestaskólar skila staðfestu einkunnayfirliti eftir brautskráningafrest HÍ. SÆKJA UM Styrkveiting er háð því að gestaskólinn hafi samþykkt umsóknina og samþykktarbréf því til staðfestingar sé hengt við umsóknina ásamt námsferilsyfirliti á ensku, með röðun. Þurfi að velja á milli nemenda sem sótt hafa um styrk eða í sama skóla gilda reglur Alþjóðasviðs um forgangsröðun umsókna. facebooklinkedintwitter