Doktorsvörn í heimspeki: Ole Martin Sandberg
![Doktorsvörn í heimspeki: Ole Martin Sandberg - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_Picture19.jpg?itok=scpubNKz)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Þriðjudaginn 29. júní 2021 fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá ver Ole Martin Sandberg doktorsritgerð sína í heimspeki, Life in Solitary: Anthropological Assumptions as Self-Fulfilling Prophecies. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13. (Smelltu hér til að fylgjast með í streymi).
Andmælendur við vörnina verða dr. S.M. Amadae, lektor við Háskólann í Helsinki, og dr. Hlynur Orri Stefánsson, dósent við Háskólann í Stokkhólmi.
Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Sigríðar Þorgeirsdóttur, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Benjamin Franks, dósent við Háskólann í Glasgow, og dr. Mikkel Thorup, prófessor við Háskólann í Árósum. Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Í doktorsritgerðinni rannsakar Ole hvernig staðhæfingar um manneðli hafa áhrif á stjórnmála- og hagfræðikenningar og hvernig þessar kenningar móta hegðun og sjálfsveru manna. Sjónum er beint að einstaklingsmiðuðum kenningum sem byggja á mynd af einstaklingum hverra langanir (e. preferences) eru óháðar öðrum. Í slíkum líkönum er tvennt sett fræðilega á oddinn, átök milli sjálfstæðra einstaklinga og ósennileiki samvinnu og trausts þeirra á milli. Þar af leiðandi er viss samfélagsleg og pólitísk skipan talin vera alger nauðsyn. Þetta viðhorf má sjá í heimspeki Hobbes og Rawls og í samfélagskenningu um skynsamlegt val (Rational Choice Theory) sem hefur verið grunnur nýklassískrar hagfræði og nýfrjálshyggjustefnu. Vandinn er ekki sá að þetta sé röng sýn á manneðlið heldur miklu frekar að hún hafi áhrif á sjálfsveru og hegðun fólks - að það sé hætta á að hún verði að virkri spá (e. self-fulfilling prophecy). Það gæti orðið tilfellið ef ein samfélagsskipan og samsvarandi hugmyndafræði yrðu allsráðandi, en veruleikinn er hins vegar sá að við gegnum ólíkum hlutverkum í mismunandi samböndum, sem geta af sér ólíkar gerðir sjálfsveru og skynsemi sem rekast á og verka hver á aðra með ófyrirsjáanlegum hætti.
Um doktorsefnið
Ole Martin Sandberg lauk BA- og MA-prófi í heimspeki frá Háskólanum í Suður-Danmörku. Hann kennir umhverfisheimspeki við Háskóla Íslands.
Ole Martin Sandberg
![Doktorsvörn í heimspeki: Ole Martin Sandberg](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/7x442.jpg?itok=ut5odJpt)