Skip to main content

Sprettur-Mentor

Sprettur-Mentor - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hvað er að vera mentor í Spretti?

Mentorar eru háskólanemar sem vilja láta gott af sér leiða. Markmið hlutverksins er að vera menningarbrúarsmiður og leiðbeinandi í lærdómsferli annarra nemenda í verkefninu Spretti. Mentorar sinna því mikilvæga hlutverki að styðja og hvetja nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk þeirra er að skapa uppbyggjandi mentorasambönd við aðra, taka þátt í skemmtilegri virkni, heimavinnuhópum og sameiginlegum viðburðum með öllum hópnum. Mentorhlutverkið snýst um tengslamyndun og í þátttöku felst því skuldbinding gagnvart þátttakendum Spretts.  

Við hvetjum háskólanema á öllum námsbrautum og af öllum kynjum, sem geta skuldbundið sig til að taka þátt yfir eitt til tvö misseri, til þess að taka þátt!

Hverju taka mentorar þátt í?  

  • Hálfsmánaðarlegri samveru með þátttakendum Spretts.  

  • Hálfsmánaðarlegum heimavinnuhópum.  

  • Sameiginlegum menningar- og háskólaviðburðum.  

  

Hvað fá mentorar?  

  • 5 eininga námskeið um mentorhlutverkið þar sem meðal annars er fjallað um málefni innflytjenda, leiðtogafærni, fjölmenningarfærni, hnattræna borgaravitund, og fleira.  

  • Skírteinisviðauka/Diploma supplement.  

  • Persónulegan stuðning og tækifæri til að blómstra og prófa fjölbreyttar aðferðir til að styðja aðra.  

  

Hvernig verð ég mentor í Spretti?  

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Spretti, fylltu út þetta eyðublað og verkefnisstjóri Spretts mun hafa samband við þig.   

Hafðu samband

Juan Camilo Roman Estrada
Fjölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri Spretts
Tölvupóstur: juancamilo@hi.is
Sími: 525-5405

Verkefnisstjóri Spretts
Tengt efni
Viðtöl við mentora í Spretti