Nærri 450 þreyta inntökupróf í Læknadeild
Metfjöldi þátttakenda hefur skráð sig í inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði við Læknadeild Háskóla Íslands sem fer fram dagana 11. og 12. júní, eða samtals 443. Það eru rúmlega 20 fleiri en í fyrra og tæplega hundrað fleiri en í hitteðfyrra.
Alls munu 344 þreyta inntökupróf í læknisfræði og fjölgar þeim um 21 milli ára. Þá sækja 99 manns um inntöku í sjúkraþjálfunarfræði eða einum fleiri en í fyrra. Sama próf er lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu eiga kost á að hefja nám.
Fjöldi þeirra sem hefur nám miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Í læknisfræði verða nú teknir inn 60 nemendur og í sjúkraþjálfunarfræði er fjöldinn sá sami og verið hefur undanfarin ár, eða 35 nemendur.
Inntökuprófið hefur um árabil farið fram í húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð en vegna framkvæmda þar fer prófið að þessu sinni fram í húsakynnum Háskóla Íslands. Inntökuprófið tekur tvo daga líkt og áður og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum.
Þess má geta að þeir sem fara í prófið en komast ekki inn í Læknadeild geta skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands fram til 20. júlí.