Nýsköpun og uppbygging Byggja upp trausta innviði, stuðla að sjálfbærri iðnvæðingu og hlúa að nýsköpun 9.1 Þróaðir verði traustir innviðir, sjálfbærir og sveigjanlegir, hvort sem er staðbundnir eða yfir landamæri, í því skyni að styðja við efnahagsþróun og velmegun þar sem lögð verði áhersla á jafnt aðgengi á viðráðanlegu verði fyrir alla. 9.2 Stuðlað verði að sjálfbærri iðnþróun fyrir alla og eigi síðar en árið 2030 hafi hlutur iðnaðar í atvinnulífi og vergri landsframleiðslu aukist verulega í ljósi aðstæðna heima fyrir og tvöfaldast í þeim þróunarlöndum sem skemmst eru á veg komin. 9.3 Aukið verði aðgengi lítilla iðnfyrirtækja og annars konar fyrirtækja, einkum í þróunarlöndum, að fjármálaþjónustu, meðal annars að hagstæðum lánum. Einnig verði þáttur þeirra í verðmætakeðjum og á mörkuðum aukinn. 9.4 Eigi síðar en árið 2030 verði innviðir styrktir og atvinnugreinar endurskipulagðar til að gera þær sjálfbærar, nýting auðlinda verði skilvirkari og í auknum mæli innleiði hvert og eitt land tækni og umhverfisvæna verkferla eftir getu. 9.5 Vísindarannsóknir verði efldar og tæknigeta atvinnugreina í öllum löndum endurbætt, þar á meðal í þróunarlöndum. Eigi síðar en árið 2030 verði ýtt undir nýsköpun og fjölgað störfum við rannsóknir og þróun fyrir hverja milljón íbúa, auk þess sem útgjöld til rannsókna og þróunar hins opinbera og einkageirans verði aukin. Vísindamenn tengdir markmiðinu Anna KarlsdóttirDósentannakar [hjá] hi.is Bing WuPrófessor5254616wubing [hjá] hi.is Björn Viðar AðalbjörnssonDósent6962911bva [hjá] hi.is Brynhildur DavíðsdóttirPrófessor5255233bdavids [hjá] hi.is Guðmundur Freyr ÚlfarssonPrófessorgfu [hjá] hi.is Guðrún Valgerður StefánsdóttirPrófessor emerita5255366gvs [hjá] hi.is Vefþjónusta fyrir símaskrá svarar ekki eða fyrirspurnin skilar engum niðurstöðum - (nafnalisti) Gunnar Þór JóhannessonPrófessor5254055gtj [hjá] hi.is Hróbjartur ÁrnasonLektor5255393hrobjartur [hjá] hi.is Inga Jóna JónsdóttirDósent3545254202ingajona [hjá] hi.is Jónína EinarsdóttirPrófessor emerita5254508je [hjá] hi.is Kristín Vala RagnarsdóttirPrófessor emerita5255886vala [hjá] hi.is Magnús Þór TorfasonPrófessor5254291torfason [hjá] hi.is Matthias BookPrófessor5254930book [hjá] hi.is Vefþjónusta fyrir símaskrá svarar ekki eða fyrirspurnin skilar engum niðurstöðum - (nafnalisti) Rögnvaldur Jóhann SæmundssonPrófessor5254623rjs [hjá] hi.is Steinunn HrafnsdóttirPrófessor5255266steinhra [hjá] hi.is Svanborg Rannveig JónsdóttirPrófessor emerita5255580svanjons [hjá] hi.is Sæmundur E ÞorsteinssonSérfræðingur5254920saemi [hjá] hi.is Trausti ValssonPrófessor emeritus5254664tv [hjá] hi.is Þróunarlönd 9.A Stuðlað verði að sjálfbærri uppbyggingu innviða í þróunarlöndum með sveigjanleika að viðmiði, auknum fjárhagsstuðningi og tæknilegum stuðningi við Afríkuríki, þróunarlönd sem eru skemmst á veg komin, landlukt þróunarlönd og þróunarlönd sem eru smáeyríki. 9.B Stutt verði við tækniþróun, rannsóknir og nýsköpun í þróunarlöndum, meðal annars með því að festa í sessi stefnumótandi umhverfi sem stuðlar til dæmis að fjölbreyttu atvinnulífi og virðisauka. 9.C Aðgengi að upplýsinga- og fjarskiptatækni verði aukið verulega og lagt kapp á að almenningur hafi aðgang að netinu á viðráðanlegu verði í þeim þróunarlöndum sem eru skemmst á veg komin. Tengt efni Háskólinn og heimsmarkmiðin facebooklinkedintwitter