Skip to main content

Skiptinám á vormisseri 2025 - Viðbótarumsóknarfrestur

Skiptinám á vormisseri 2025 - Viðbótarumsóknarfrestur - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nemendum gefst kostur á að sækja um skiptinám á vormisseri 2025 í skólum sem enn er laust í. Frestur til að sækja um er 10. september nk.

Kynningarfundir og vinnustofur
Haldnir verða kynningarfundir fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér skiptinám á vormisseri 2025. Auk þess verður boðið upp á tvær vinnustofur. Nánari upplýsingar síðar.

Fyrir frekari upplýsingar um umsóknarferlið og gestaskóla er hægt hafa samband við Alþjóðasvið með því að senda póst á ask@hi.is, hringja í síma 525 4311 eða líta við á skrifstofu okkar á 3. hæð á Háskólatorgi. Gott er að kynna sér vel upplýsingar á vefsíðunni okkar en þar kemur fram mikið af hagnýtum upplýsingum um skiptinámsferlið.

Upplýsingar um skiptinám og umsóknarferlið