Doktorsvörn í mannfræði - Guðrún Sif Friðriksdóttir
![Doktorsvörn í mannfræði - Guðrún Sif Friðriksdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir/hatid_haskolatorg.jpg?itok=4EJNceTU)
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Mánudaginn 24. júní ver Guðrún Sif Friðriksdóttir doktorsritgerð sína í mannfræði sem ber heitið The Battle for Belonging: Reintegration of Ex-combatants in Burundi, eða Barist fyrir samfélagsaðild: Aðlögun fyrrverandi hermanna og skæruliða í Búrúndí. Vörnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl.14:00 og er öllum opin.
Andmælendur eru Dr. Peter Uvin, prófessor í stjórnmálafræði við Claremont McKenna College og Dr. Marielle Debos, dósent í stjórnmálafræði við University Paris Nanterre.
Leiðbeinandi Guðrúnar Sifjar er Dr.Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd eru Dr. Helga Þórey Björnsdóttir, aðjúnkt í mannfræði við Háskóla Íslands og Dr. Mats Utas, prófessor í mannfræði við Háskólann í Uppsölum.
Doktorsvörninni stýrir Dr. Stefán Hrafn Jónsson, deildarforseti Félagsfræði, mannfræði- og þjóðfræðideildar.
Um doktorsefnið
Guðrún Sif Friðriksdóttir er fædd á Akureyri árið 1979. Hún lauk BA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og MA-prófi í Hnattvæðingu frá Dublin City University árið 2006. Hún hefur starfað sem verkefnisstjóri að verkefnum tengdum konum, frið og öryggi hjá UN Women í Líberíu og í Suður-Súdan og verkefnum tengdum kynbundnu ofbeldi hjá UN Women, Laos. Eiginmaður Guðrúnar er Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Mánudaginn 24. júní ver Guðrún Sif Friðriksdóttir doktorsritgerð sína í mannfræði sem ber heitið The Battle for Belonging: Reintegration of Ex-combatants in Burundi, eða Barist fyrir samfélagsaðild: Aðlögun fyrrverandi hermanna og skæruliða í Búrúndí.
![Doktorsvörn í mannfræði - Guðrún Sif Friðriksdóttir](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/zg8r7.jpg?itok=uEYbKu45)