Börn og unglingar á yfirsnúningi - mikilvægi næringar og svefns fyrir unga Íslendinga
![Börn og unglingar á yfirsnúningi - mikilvægi næringar og svefns fyrir unga Íslendinga - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir/googlemap_3.png?itok=ndcHsDbG)
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrarsalur
Erna Sif Arnardóttir, nýdoktor við Læknadeild Háskóla Íslands, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild skólans, fjalla um mikilvægi svefns og næringar fyrir börn og ungmenni og innbyrðis tengsl þessara þátta á fræðslufundi í Háskóla Íslands miðvikudaginn 9. maí kl. 12-13. Fundurinn verður í fyrirlestrarsal Veraldar – húss Vigdísar og er liður í fundaröð Háskóla Íslands, Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin.
Bein útsending frá viðburðinum:
Svefn og næring eru tvær af helstu grunnstoðum heilsu ásamt hreyfingu og andlegri vellíðan. Í erindinu sínu mun Ingibjörg fjalla um mikilvægi næringar, allt frá fósturskeiði til unglingsára, með áherslu á næringarefni sem tengjast þroska barna. Erna Sif fjallar um mikilvægi góðs svefns fyrir andlega og líkamlega heilsu barna og samspil svefns og líkamsklukku sem hefur mikil áhrif á syfju og „sofnunartíma“.
„Farið verður yfir ýmis ráð til að hjálpa börnum og unglingum sem eiga erfitt með að sofna á kvöldin og að vakna snemma á morgnana. Unglingar eiga oft sérstaklega erfitt með þetta vegna náttúrulegrar seinkunar líkamsklukkunnar á þeim árum ævinnar,“ segir Erna Sif.
Ingibjörg segir að hollt mataræði og hæfileg neysla næringarefna sé undirstaða vaxtar og þroska barna. „Lélegt næringarástand, of- eða vannæring, getur áhrif á getu barna til að læra og áhrifa gætir því mjög víða í samfélaginu. Aukið framboð á drykkjum sem innihalda ýmis örvandi efni er áhyggjuefni.“
Markmiðið með fundaröðinni Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin er að dýpka sýn bæði almennings og fagfólks á vandamál og lausnir á mikilvægum samfélagslegum þáttum og styðja fjölskyldur og samfélag í því að tryggja velferð barna og ungmenna. Fyrirlestrarnir í fundaröðinni verða alls sex og þetta er sá fimmti í röðinni.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar á www.hi.is/haskolinnogsamfelagid
Erna Sif Arnardóttir, nýdoktor við Læknadeild Háskóla Íslands, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild skólans, fjalla um mikilvægi svefns og næringar fyrir börn og ungmenni og innbyrðis tengsl þessara þátta á fræðslufundi í Háskóla Íslands miðvikudaginn 9. maí kl. 12-13.
![Börn og unglingar á yfirsnúningi - mikilvægi næringar og svefns fyrir unga Íslendinga](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/z4dag.jpg?itok=ScX3dwEG)