
Sagnfræði
180 einingar - Ph.D. gráða
Doktorsnám í sagnfræði er þriggja ára rannsóknatengt framhaldsnám. Markmið doktorsnáms í sagnfræði er að veita doktorsnemum sem besta og víðtækasta vísindalega þjálfun og undirbúning undir vísindastörf á fræðasviði sínu, t.d. háskólakennslu eða sérfræðistörf hjá rannsóknastofnun.
Meistarapróf í sagnfræði með fyrstu einkunn eða samsvarandi próf.

Nemendafélög
Nemendur sem stunda doktorsnám á Hugvísindasviði geta gengið í Félag doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands. Þeir eru einnig sjálfkrafa skráðir í Félag doktorsnema á Hugvísindasviði sem vinnur að hagsmunamálum doktorsnema á sviðinu, miðlar upplýsingum til þeirra, tilnefnir fulltrúa doktorsnema í ráð og nefndir og stendur fyrir félagsstarfi meðal doktorsnema á Hugvísindasviði.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs er staðsett á 3. hæð í Aðalbyggingu Háskólans við Sæmundargötu 2.
Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 alla virka daga. Hægt er að nálgast upplýsingar í síma 525 4400 eða með tölvupósti á netfangið hug@hi.is.
Nemendur við Hugvísindasvið geta einnig nýtt sér þjónustuborð Háskólans á Háskólatorgi.
