Skip to main content

Íslensk málfræði, doktorsnám

Íslensk málfræði

240 einingar - Doktorspróf

. . .

Doktorsnám í íslenskri málfræði er 240 einingar og tekur fjögur ár miðað við fullan námshraða.

Inntökuskilyrði

Framhaldsnám

MA-próf úr íslensku með fyrstu einkunn (7,25).

Nemendafélög

Nemendur sem stunda doktorsnám á Hugvísindasviði geta gengið í Félag doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands. Þeir eru einnig sjálfkrafa skráðir í Félag doktorsnema á Hugvísindasviði sem vinnur að hagsmunamálum doktorsnema á sviðinu, miðlar upplýsingum til þeirra, tilnefnir fulltrúa doktorsnema í ráð og nefndir og stendur fyrir félagsstarfi meðal doktorsnema á Hugvísindasviði.

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs er staðsett á 3. hæð í Aðalbyggingu Háskólans við Sæmundargötu 2. Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 alla virka daga. Hægt er að nálgast upplýsingar í síma 525 4400 eða með tölvupósti á netfangið hug@hi.is. Nemendur við Hugvísindasvið geta einnig nýtt sér þjónustuborð Háskólans á Háskólatorgi.