Þrjú styrkt til náms við Minnesota-háskóla
Þrír nemendur við Háskóla Íslands, Margrét Gísladóttir, nemi í viðskiptafræði, og Friðrik Sveinsson og Styrmir Guðmundsson, nemar í iðnaðarverkfræði, hlutu á dögunum styrk frá styrktarsjóði Val Bjornson Icelandic Exchange Scholarship Fund til þess að stunda nám á vormisseri við Minnesota-háskóla (University of Minnesota) í Bandaríkjunum.
Sjóðurinn var stofnaður í minningu Valdimars „Val“ Bjornson, fyrrverandi fjármálaráðherra Minnesota (1906–1987). Hann var af íslensku bergi brotinn, einstakur ættjarðarvinur og var ákaflega annt um íslenska námsmenn í Minnesota. Sjóðurinn hefur notið mikils stuðnings vesturíslenska samfélagsins í Minnesota.
Minnesota-háskóli er elsti erlendi samstarfsháskóli Háskóla Íslands og í vetur stunda tveir nemendur frá skólanum nám við Háskóla Íslands. Það eru þær Michelle Wang, sem er nemandi í mannfræði, og Rachel Schollaert, nemandi í ensku og bókmenntum. Þær hljóta styrk frá Háskóla Íslands.
Samstarf Háskóla Íslands og Minnesotaháskóla spannar hátt á fjórða áratug og hafa skólarnir átt víðtækt samstarf, m.a. um stúdenta-, kennara- og starfsmannaskipti ásamt öflugu rannsóknasamstarfi. Í maí sl. var haldið upp á 35 ára samstarfsafmæli skólanna og heimsótti rektor Minnesota-háskóla og sendinefnd Háskóla Íslands og undirritaður var áframhaldandi samningur um samstarf og stúdentaskipti.
Hér á landi er starfandi Hollvinafélag fyrrverandi nemenda Minnesota-háskóla á Íslandi. Jónína Kárdal Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands, er formaður félagsins en hún er ein þeirra sem notið hafa styrks úr styrktarsjóði Val Bjornson.