Get ég sótt um þótt fresturinn sé liðinn? Já, það má sækja um starfsþjálfun allan ársins hring, en þeir sem sækja um fyrir umsóknarfrest njóta forgangs um úthlutun styrkja. Meðan fjármagn er til staðar er úthlutað til allra sem sækja um að því gefnu að öll skilyrði starfsþjálfunar séu uppfyllt og öllum tilskildum gögnum sé skilað inn. Ekki er tekið við umsóknum ef minna en 6 vikur eru í áætlaða brottför. Nemendur sem eru að brautskrást verða að sækja um styrkinn eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir brautskráningu. Ekki er tekið á móti umsóknum um styrkinn eftir útskrift ef sótt er um eftir þann frest. Hvenær fæ ég svar við umsókn minni? Umsóknum er svarað innan sex vikna. Hvenær er styrkurinn er greiddur út? Nokkrir dagar geta liðið frá afgreiðslu styrks þar til greiðsla berst inn á reikning nemenda og eru nemendur beðnir um að sýna biðlund. Athugið að tafir geta einnig orðið á greiðslu styrkja vegna sumar- og jólaleyfa. Leitast er við að greiða fyrri úthlutun ekki seinna en við brottför. Fyrir lengri dvalir (2-12 mánuðir: Fyrri úthlutun styrksins (70%) fer fram fyrir brottför að því gefnu að eftirfarandi gögnum sé skilað til Alþjóðasviðs: Undirritaður styrksamningur Undirrituð yfirlýsing nemanda Seinni úthlutun styrksins (30%) fer fram eftir heimkomu þegar nemandi hefur skilað inn eftirfarandi gögnum: Útfylltu og undirrituðu skjali „After the Mobility“ (staðfesting á dvöl - aftast í námssamningi). Lokaskýrslu Erasmus+ sem er send sjálfkrafa á netfang nemanda við lok starfsþjálfunarinnar. Ef þessum gögnum er ekki skilað verður nemandi að endurgreiða styrkinn. Fyrir styttri dvalir (5-30 dagar): Allur styrkurinn er greiddur fyrir brottför að því gefnu að eftirfarandi gögnum sé skilað til Alþjóðasviðs: Undirritaður styrksamningur Undirrituð yfirlýsing nemanda Við lok dvalar þurfa nemendur að skila útfylltu og undirrituðu skjali „After the Mobility“ (staðfesting á dvöl - aftast í námssamningi) og lokaskýrslu Erasmus+ sem er send sjálfkrafa á netfang nemanda við lok starfsþjálfunarinnar. Ef þessum gögnum er ekki skilað verður nemandi að endurgreiða styrkinn. Hvert get ég farið í starfsþjálfun? Hægt er að sækja um styrk fyrir starfsþjálfun í einu af þátttökulöndum Erasmus+. Ég hef ekki fengið Erasmus+ lokaskýrsluna – af hverju? Skýrsluformið er sent sjálfkrafa á lokadegi starfsþjálfunarinnar skv. styrksamningnum þínum. Ekki er hægt að fá lokaskýrsluna senda fyrr þótt óskað sé eftir því. Hafi skýrslan ekki verið send þótt liðinn sé sólarhringur frá lokadegi starfsþjálfunar skal hafa samband við Alþjóðasvið. facebooklinkedintwitter