Haustmisseri 2024
16. ágúst Móttaka nýnema á Hugvísindasviði |
19. ágúst Kennsla haustmisseris hefst |
26 - 30. ágúst Nýnemadagar |
5. sept. Síðasti dagur til að endurskoða skráningar á námskeiðum/prófum á haustmisseri 2024 |
9. sept. Skiladagur MA og BA ritgerða á skrifstofu Hugvísindasviðs |
15. sept. Síðasti dagur til úrskráningar úr námskeiðum/prófum á haustmisseri |
30. sept. Próftafla haustmisserisprófa birt |
30. sept. Eindagi einkunnaskila vegna brautskráningar í október |
30. sept.-4. okt. Verkefnavika |
30. sept.- 5. okt. Miðmisseriskönnun á kennslu og námskeiðum |
1. okt. Síðasti dagur til að sækja um sértæk úrræði í námi hjá Nemendaráðgjöf HÍ |
15. okt. Umsóknarfrestur um framhaldsnám sem hefst á vormisseri 2025 rennur út |
25. okt. Afhending prófskírteina, engin brautskráningarathöfn |
15. nóv. Kennslu haustmisseris lýkur |
17.-26. nóv. Kennslukönnun – mat á kennslu og námskeiðum |
25. nóv. -9. des. Haustmisserispróf |
30. nóv. Umsóknarfrestur um grunnnám á vormisseri 2025 rennur út |
18.-20. des. Sjúkrapróf vegna prófa sem haldin voru til og með 27. nóv. |
19. des-3. jan. Jólaleyfi |
Vormisseri 2025
3.-7. janúar Sjúkrapróf vegna prófa á tímabilinu 28. nóv. til 9. des. |
6. janúar Skiladagur BA og MA ritgerða á skrifstofu Hugvísindasviðs |
13. janúar Kennsla vormisseris hefst |
21. janúar Síðasti dagur til að endurskoða skráningar á námskeiðum/prófum á vormisseri 2025 |
27. janúar Eindagi einkunnaskila vegna brautskráningar 21. febrúar |
31. janúar Próftafla vormisserisprófa birt |
1. febrúar Síðasti dagur til úrskráningar úr námskeiðum/prófum á vormisseri |
1. febrúar Umsóknarfrestur erlendra ríkisborgara um grunn- og framhaldsnám rennur út |
10.-15. febrúar Miðmisseriskönnun á kennslu og námskeiðum |
21. febrúar Brautskráning kandídata |
24.-28. febrúar Verkefnavika |
1. mars Síðasti dagur til að sækja um sértæk úrræði í námi hjá Nemendaráðgjöf HÍ |
7. mars -14. apríl Skráning í námskeið á haust- og vormisseri 2025-2026 |
8.-21. apríl Kennslukönnun – mat á kennslu og námskeiðum |
11. apríl Kennslu vormisseris lýkur |
15. apríl Umsóknarfrestur um framhaldsnám sem hefst á haustmisseri 2025 rennur út |
16-21. apríl Páskaleyfi |
22. apríl- 8. maí Vormisserispróf |
25. apríl Skiladagur MA ritgerða á skrifstofu Hugvísindasviðs |
28. apríl Skiladagur BA ritgerða á skrifstofu Hugvísindasviðs |
19. maí Eindagi einkunnaskila vegna brautskráningar 14. júní |
28. maí-2. júní Sjúkrapróf v/vormisserisprófa og endurtökupróf v/haust- og vormisserisprófa |
5. júní Umsóknarfrestur um grunnnám frá og með haustmisseri 2025 rennur út |
14. júní Brautskráning kandídata |
Hér er slóð á kennslualmanak HÍ í kennsluskrá skólans.
Sjá einnig nánar í kennslualmanaki Háskóla Íslands.
Kennsluhlé
Páskaleyfi er frá miðvikudegi fyrir skírdag til þriðja í páskum. Upphafs- og lokadagur hvors leyfis telst með. Auk þessara leyfa er kennsluhlé sumardaginn fyrsta, 1. maí og 1. desember.
Mikilvægi skráningar
Skipulag náms í Háskóla Íslands byggir á skráningu stúdenta í námskeið og próf. Hver stúdent ber ábyrgð á námi sínu. Stúdentar þurfa því að gæta vel að reglum um skráningu og auglýst skráningartímabil. Því betur sem þeir sinna þessum skyldum sínum, þeim mun betri þjónustu geta þeir vænst að fá.
Skil lokaritgerða:
Skila þarf Pdf-skjali af lokaritgerð til hug@hi.is. Með ritgerðinni þarf að fylgja staðfesting á að ritgerð hafi verið vistuð á skemman.is.