![Við Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/namsleid_efsti/public/thbg/kri_150901_felagsv_021.jpg?itok=6_fwd4cz)
Félagsfræði
210 einingar - Doktorspróf
Markmið doktorsnáms í félagsfræði er að veita nemendum þjálfun í sjálfstæðum vísindalegum vinnubrögðum og búa þá undir vísindastörf og háskólakennslu. Námsbraut í félagsfræði á í samstarfi við erlenda háskóla og eru nemendur hvattir til að verja hluta af námsferlinum erlendis. Hafi nemandi tekið allt fyrra háskólanám hér á landi, skal hann taka að lágmarki eina önn við erlendan háskóla.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/thbg/1920_kri0323.jpg?itok=nskDDuYp)
Um námið
Doktorsnám í félagsfræði samanstendur af 180 eininga ritgerð og 30 einingum í námskeiðum á fræðasviði doktorsverkefnis. Námsbrautin getur, þar að auki, gert kröfu um að doktorsnemandi taki allt að 60 einingar í námskeiðum, í samráði við leiðbeinanda. Nemendur í doktorsnámi er skylt að taka þátt í málstofum doktorsnámsins í samráði við leiðbeinanda.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/thbg/1920_kri0545.jpg?itok=fsUvqPNl)
Að námi loknu
Við útskrift býr nemandi yfir sérfræðiþekkingu innan fræðigreinar, hann getur beitt sérhæfðum aðferðum og verklagi og hagnýtt þekkingu sína og leikni í starfi.
Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófi (kandídatsprófi) eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.