
Líffræði
180 einingar - Ph.D. gráða
Námið er þriggja ára fræðilegt og verklegt framhaldsnám (rannsóknatengt framhaldsnám) í líffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild.
Námið er hið minnsta 180 einingar og leiðir til prófgráðunnar philosophiae doctor, Ph.D.

Um námið
Doktorsverkefni skal vera 180 einingar.
Doktorsnefnd getur gert kröfu um að nemandi í doktorsnámi ljúki einnig námskeiðum.
Einingar fyrir námskeið bætast ofan á þær einingar sem gefnar eru fyrir doktorsverkefnið.
Nánar um hæfniviðmið í kennsluskrá.
MS-gráða frá Líf- og umhverfisvísindadeild eða sambærileg.
Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Hafðu samband
Nemendaþjónusta VoN
s. 525 4466 - phdsens@hi.is
Opið virka daga frá 09:00-15:30
Tæknigarður - Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Askja - Sturlugata 7, 102 Reykjavík
Fylgstu með Verkfræði- og náttúruvísindasviði
