
Vélaverkfræði
180 einingar - Ph.D. gráða
Námið er þriggja ára fræðilegt og verklegt framhaldsnám (rannsóknatengt framhaldsnám) í vélaverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.

Um námið
Rannsóknarverkefnið er 180 einingar. Doktorsnefnd getur sett fram námskeiðskröfur sem hún telur nauðsynlegar fyrir verkefnið.
Umsækjendur þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám.
Nánar um hæfniviðmið í kennsluskrá.
MS-gráða frá deildinni eða sambærileg. Umsækjendur í doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám. Nemendum er bent á að hafa samband við námsbrautarformann og/eða deildarforseta á því fagsviði sem þeir hafa hug á í sínu framhaldsnámi.
Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Hafðu samband
Nemendaþjónusta VoN
s. 525 4466 - nemvon@hi.is
Opið virka daga frá 09:00-15:30
Tæknigarður - Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Askja - Sturlugata 7, 102 Reykjavík
Fylgstu með Verkfræði- og náttúruvísindasviði
