Í erli dagsins skiptir holl og góð næring miklu máli. Veitingasala er í flestum byggingum á háskólasvæðinu. Þar er úrval veitinga til sölu og eru Háma, Kaffistofur stúdenta og Stúdentakjallarinn öllum opin. Háma og kaffistofur Í Hámu og kaffistofum stúdenta er boðið upp á fjölbreytt úrval af mat og drykk. Háma er staðsett á Háskólatorgi, í Stakkahlíð, Tæknigarði, Læknagarði, Þjóðarbókhlöðunni, Eirbergi og Öskju. Háma salatbar er á Háskólatorgi en minni sjálfsafgreiðslu salatbarir eru í Tæknigarði, Læknagarði og Stakkahlíð Bókakaffi er í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi. Þar er boðið upp á ýmiss konar kaffidrykki og meðlæti. Í VR-II og í Haga eru veitingasölur reknar af stúdentum. Opið er í Hámu á Háskólatorgi og í Bókakaffi allt árið en aðrar kaffistofur eru opnar í samræmi við kennslutímabil. Matseðill í Hámu og upplýsingar um afgreiðslutíma kaffistofa. Stúdentakjallarinn Veitinga- og skemmtistaður stúdenta, Stúdentakjallarinn, er staðsettur í kjallara Háskólatorgs. Þar er boðið upp á fjölbreyttan matseðil og afþreyingu. Stúdentakjallarinn er opinn alla daga frá 11:00-23:00. Á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum er opið frá kl. 11:00-1:00. Matseðill Stúdentakjallarans facebooklinkedintwitter