Skip to main content

Inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar

Inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði 2024

(26. júní 2024)

Niðurstöður inntökuprófs Læknadeildar og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands (fyrir læknisfræði sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði) sem haldið var dagana 6. og 7. júní 2024 liggja nú fyrir. 

Svarbréf hafa verið send til allra próftaka með tölvupósti. 

  • Boð um nám samþykkt eða hafnað fyrir kl. 18 miðvikudaginn 10. júlí 2024.
    Þeir próftakar sem öðlast rétt til náms þurfa að staðfesta í tölvupósti hvort þeir ætli að nýta þann rétt eða ekki, læknisfræði: tjonah@hi.is, sjúkraþjálfunarfræði: saa@hi.is og tannlæknisfræði: srv2@hi.is. ATH. Taka þarf fram nafn og kennitölu. 

  • Greiðslufrestur skrásetningargjalds rennur út 20. júlí 2024.
    Fljótlega eftir að svarbréf hafa verið send út mun möguleiki til greiðslu á skrásetningargjaldinu, kr. 75.000,- birtast inn í samskiptagáttinni undir flipanum "Yfirlit umsókna". 

  • Frestur til að sækja um annað nám rennur út 20. júlí 2024.
    Eftir að niðurstöður hafa verið birtar munu þeir próftakar sem ekki öðlast rétt til náms í Læknadeild eða Tannlæknadeild, eða afþakka hann, eiga þess kost að sækja um í annað nám í gegnum samskiptagátt HÍ gegn greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands. 

  • Greiðslufrestur skrásetningargjalds fyrir annað nám rennur út 12. Ágúst 2024
    Fljótlega eftir að umsóknir í annað nám hafa verið afgreiddar mun möguleiki til greiðslu á skrásetningargjaldinu, kr. 75.000,- birtast inn í samskiptagáttinni undir flipanum "Yfirlit umsókna". 

Hafðu samband við skrifstofu Læknadeildar í síma 525 4899 eða á netfang medicine@hi.is hafir þú fyrirspurnir eða athugasemdir.

Tengt efni:
Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands