Heilbrigðisvísindasvið stendur fyrir fjölda viðburða fyrir starfsfólk, nemendur, samstarfsaðila og almenning. Þar ber hæst að nefna ráðstefnuna í líf- og heilbrigðisvísindum sem fram fer annað hvert ár. Upplýsingar um hvaða viðburðir eru á döfinni á Heilbrigðisvísindasviðið hverju sinni má finna í viðburðadagatali Háskólans. Kynning nýrra prófessora Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Dagskráin fer þannig fram að forseti Heilbrigðisvísindasviðs byrjar á stuttu yfirliti yfir bakgrunn viðkomandi prófessors. Prófessorinn tekur svo við og flytur erindi um helstu störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Boðið er upp á léttar veitingar í lok dagskrár og þá gefst tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor. Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á nýjum prófessorum, að auka tengsl og samstarf innan skólans og að hefja prófessorsstarfið til vegsemda. Líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnan Heilbrigðisvísindasvið stendur fyrir ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum annað hvert ár. Ráðstefnunni er ætlað að miðla því sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum hverju sinni og stuðla að þverfræðilegu samstarfi. Á ráðstefnunni hefur farið fram kynning á allt að 300 rannsóknum sem ná yfir flest fræðasvið líf- og heilbrigðisvísinda. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin. Sjá nánar á heimasíðu ráðstefnunnar. Nýsköpunarráðstefna Heilbrigðisvísindasvið hefur staðið fyrir ráðstefnu sem er tileinkuð nýsköpun í heilbrigðisvísindum annað hvert ár síðan 2013. Þar gefst vísindafólki innan Háskólans og utan tækifæri til þess að hittast og kynna verkefni sín. Ráðstefnan er opin og öllum og ókeypis. Aðrir viðburðir Á Heilbrigðisvísindasviði er fjöldi tilfallandi viðburða, svo sem fyrirlestrar, málþing og vinnustofur. Sviðið tekur einnig þátt í miðlægum viðburðum í Háskóla Íslands, svo sem Háskóladegi, Háskóla unga fólksins, Háskólahermi, Hátíð brautskráðra doktora o.s.frv. Deildir Heilbrigðisvísindasviðs standa einnig fyrir eigin viðburðum. Upplýsingar um hvaða viðburðir eru á döfinni á Heilbrigðisvísindasviðið hverju sinni má finna í viðburðadagatali Háskólans. facebooklinkedintwitter