Reglur um Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands, nr. 546/2010
1. gr. Almennt.
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Stofnunin er vettvangur samstarfs Háskóla Íslands við opinbera aðila um eflingu náms og rannsókna um stjórnun opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga, og vettvangur umræðna um stjórnmál og stjórnsýslu.
Stofnunin heyrir undir Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði. Hún starfar sem sjálfstæður aðili í tengslum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Forseti Félagsvísindasviðs gerir samstarfssamninga um stofnunina við aðila utan Háskóla Íslands.
2. gr. Hlutverk.
Hlutverk Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er:
a. að efla framhaldsnám, starfsmenntun, rannsóknir og nýsköpun á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði innan Stjórnmálafræðideildar.
b. standa að samstarfs- og samræðuvettvangi fræðimanna í þeim tilgangi að auka samstarf, efla rannsóknir og nýsköpun á fræðasviðum Stjórnmálafræðideildar,
c. að aðstoða við öflun samstarfsaðila, öflun fjár, ráðgjöf, framkvæmd og utanumhald rannsóknarverkefna eftir atvikum í samvinnu við Félagsvísindastofnun,
d. að efla tengsl milli fræðasamfélagsins í Háskóla Íslands og forystumanna í þjóðlífi (stjórnmálamanna, stjórnsýslunnar, forystumanna atvinnulífs og hagsmunasamtaka), m.a. með fundum, ráðstefnum og útgáfu,
e. að stuðla að þverfaglegri samvinnu innan Háskóla Íslands á sviði stjórnsýslu og stjórnmála,
f. að stuðla að alþjóðlegri samvinnu og samstarfsverkefnum á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði,
[...]1
g. að halda utan um gagnasafn Stjórnmálafræðideildar,
h. að sinna kynningarstarfi fyrir Stjórnmálafræðideild [...,]1
i. að standa fyrir námskeiðahaldi, ráðstefnum og málþingum á sviði stjórnsýslu og stjórnmála og miðlun upplýsinga þar um,
j. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna, m.a. ritröð um íslenska stjórnmálafræði, auk þess að hafa umsjón með útgáfu á tímaritinu [Stjórnmál & stjórnsýsla,]1
k. að skapa lifandi umræðuvettvang um stjórnmálafræði og stjórnsýslu,
l. að sinna þjónustu á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði fyrir Félagsvísindasvið og aðra aðila, innan og utan Háskóla Íslands.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 737/2022.
3. gr. Aðstaða.
Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.
Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.
4. gr. Stjórn.
Forseti Félagsvísindasviðs skipar stofnuninni [sjö]1 manna stjórn til þriggja ára. Deildarfundur í Stjórnmálafræðideild tilnefnir þrjá menn í stjórnina og rektor Háskóla Íslands einn. Forseti Félagsvísindasviðs skipar [þrjá]1 stjórnarmenn án tilnefningar m.a. frá samstarfsaðilum stofnunarinnar sem samningar hafa verið gerðir við, sbr. 1. gr. [Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 28. gr. laga nr. 150/2022 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.]1 Stjórnin kýs sér formann úr hópi fulltrúa Stjórnmálafræðideildar.
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 737/2022.
5. gr. Stjórnarfundir.
Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.
Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti Stjórnmálafræðideildar, forseti Félagsvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.
Halda skal gerðarbók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundagerða skulu send forseta Stjórnmálafræðideildar.
6. gr. Verkefni stjórnar.
Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfsreglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.
Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild og forseta Félagsvísindasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar og forseta fræðasviðs um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.
7. gr. Forstöðumaður og starfsmenn.
Heimilt er að ráða stofnuninni forstöðumann. Forseti Félagsvísindasviðs ræður forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar stofnunarinnar.
Forstöðumaður stofnunarinnar annast daglegan rekstur hennar, þar á meðal eftirlit með starfsmönnum hennar, fjármálum og rannsóknarverkefnum. Forseti Félagsvísindasviðs setur forstöðumanni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans.
Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið.
8. gr. Fjármál.
Tekjur stofnunarinnar eru eftirfarandi:
- framlag frá Stjórnmálafræðideild,
- framlag frá samstarfsaðilum,
- styrkir til einstakra verkefna,
- greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
- tekjur af útgáfustarfsemi, námskeiða- og ráðstefnuhaldi,
- aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.
Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Stofnunin hefur sjálfstætt fjárhald en Stjórnmálafræðideild og forseti Félagsvísindasviðs bera á henni fjárábyrgð. [Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar deildarforseta Stjórnmálafræðideildar og samþykkt af forseta Félagsvísindasviðs.]1 Uppgjör skal kynnt forseta Stjórnmálafræðideildar og forseta Félagsvísindasviðs.
Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.
Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 737/2022.
9. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu Stjórnmálafræðideildar og stjórnar Félagsvísindasviðs, öðlast þegar gildi.
Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 495/2002 um Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands.
Háskóla Íslands, 15. júní 2010.