
Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum síðustu áratugi og er fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. Þessi fjölbreytileiki er greinilegur í skólum landsins og þeim fjölgar mikið sem kenna íslensku sem annað mál. Nú eru í boði spennandi námstækifæri fyrir framtíðarkennara og þau sem þegar starfa í skólum landsins og vilja sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls. Hér er gerð grein fyrir þeim námstækifærum sem Menntavísindasvið býður upp á. Þá er fjallað um sameiginlegt diplómunám í íslensku sem öðru máli á Hugvísindasviði og Menntavísindasviði sem hentar sérstaklega fyrir starfsfólk af erlendum uppruna í skólakerfinu.
Hvað þýðir það að sérhæfa sig í íslensku sem öðru máli?
Kennsla íslensku sem annars máls er frábrugðin móðurmálskennslu. Það er vegna þess að íslenska sem annað mál er kennd sem nýtt mál og krefst sérstakra aðferða og sérhæfingar kennara, m.a. í annarsmálsfræðum, máltileinkun barna og fullorðinna sem og fjöltyngis- og fjölmenningarfærni. Sérhæft háskólanám og samsvarandi námstækifæri fyrir kennara á þessu sviði byggjast á tvenns konar grunni, annars vegar á kennslufræði og rannsóknum í annarsmálsfræðum og tengdum fræðum og hins vegar á löggjöf og námskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Hvaða sérhæfing er í boði fyrir þau sem vilja kenna íslensku sem annað tungumál?
Í boði er stutt örnám fyrir starfsfólk í skólum, viðbótarnám fyrir starfandi kennara og fimm námsleiðir í 2 ára námi á meistarastigi (M.Ed. og MT-nám) fyrir kennara með leyfisbréf eða kennaranema í fimm ára háskólanámi. Á meistarastigi eru í boði kjörsvið kennsla íslensku sem annars máls.
Hvernig verð ég kennari íslensku sem öðru máls?
Að neðan er tafla með yfirliti yfir námsleiðir, sérhæfingar innan námsleiða og kjörsvið sem tengjast kennslu í íslensku sem öðru máli.
Deild faggreinakennslu
| Námsleið / sérhæfing / kjörsvið | ECTS og námstími | Prófgráða | markhópur |
|---|---|---|---|
| Námsleið: Íslenskustoð, Diplómapróf, 60 einingar | |||
|
Kjörsvið: Íslenskustoð - menntavísindi Tilheyrir Hugvísindasviði |
60 einingar 2 ár |
Diplóma | Háskólanemar á hæfnistigi B1-B2. Hýst á Hugvísindasviði. Kjörsviðið, Íslenskustoð - menntavísindi, er ætlað fólki sem vill sérhæfa sig í menntavísindum eða starfar nú þegar í skólum eða frístundastarfi. |
| Námsleið: Viðbótarpróf á meistarastigi | |||
| Kjörsvið: Íslenska sem annað mál | 60 einingar 2 ár |
Viðbótarpróf | Kennarar með leyfisbréf sem vilja bæta við sérhæfingu sína í kennslu íslensku sem annars máls |
| Námsleið: Kennsla íslensku, M.Ed og MT, 120 einingar | |||
| Sérhæfing í kennslu íslensku sem annars máls fyrir kennara með leyfisbréf | 120 einingar 1-2 ár |
M.Ed-gráða MT-gráða |
Kennarar með leyfisbréf sem vilja sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls í grunn- og framhaldsskólum. Hægt að taka M.Ed-gráðu eða MT-gráðu og munur er á inntaki náms. |
| Sérhæfing í kennslu íslensku sem annars máls í fimm ára kennaranámi | 120 einingar 1-2 ár |
M.Ed-gráða MT-gráða |
Háskólanemar á 5. ári sem vilja sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls í grunn- og framahaldsskólum. Hægt að taka M.Ed-gráðu eða MT-gráðu og munur er á inntaki náms. |
Deild kennslu- og menntunarfræði
| Námsleið / sérhæfing / kjörsvið | ECTS og námstími | Prófgráða | markhópur |
|---|---|---|---|
| Námsleið: Mál og læsi (M.Ed.) Námsleið: Mál og læsi (M.T.) |
120 einingar 2 ár |
M.Ed. M.T. |
Kennarar með leyfisbréf. Markmið námsleiðarinnar eru að nemendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu á hugtökum, kenningum, kennsluaðferðum og niðurstöðum rannsókna á sviði máls og læsis og tengi við ólíkar þarfir barna í margbreytilegum nemendahópum og starf á vettvangi. Helstu áhersluatriði á námsleiðinni eru málþroski, þróun lestrar, lesskilnings og ritunar, fjöltyngi og íslenska sem annað mál. |
| Örnám | |||
| Kennsla íslensku og læsis | 20 einingar 1 ár |
Örnám | Starfsfólk í skóla og frístundastarfi sem vill dýpka þekkingu sína í læsi og lestrarnámi fjöltyngdra nemenda og í málþroska og læsi nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Inntökuskilyrði: Umsækjandi hafi lokið kennaranámi, þroskaþjálfanámi, uppeldis- og menntunarfræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegu námi til bakkalárgráðu. |
| Kennsla barna með fjölbreyttan bakgrunn | 20 einingar 1 ár |
Örnám | Starfandi kennarar sem vilja öðlast þekkingu í kennslufræði íslensku sem annars mál og tilfinningaþörfum barna og ungmenna í grunn- og framhaldsskólum |