Skip to main content

Lagareldi, BS

Lagareldi, BS

Lagareldi

BS – 180 einingar

Sameiginlegt grunnnám Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum. Námið er boðið sem staðnám eða fjarnám við Háskólann á Akureyri og sem fjarnám með staðbundnum lotum við Háskólann á Hólum.

Nemendur öðlast þekkingu og hagnýta færni til að takast á við sérhæfð störf í fiskeldisstöðvum og fyrirtækjum sem starfa á sviði landeldis, sjókvíaeldis, þörunga- og þararæktunar, skeldýraræktunar og öðrum greinum tengdum lagareldi.

Skipulag náms

X

Inngangur að fiskeldisfræðum (INF1006180)

Námskeiðinu má skipta í tvo megin hluta, Nýnemadaga/aðferðafræði og almennan fiskeldishluta (1) Á nýnemadögum verður starfsemi og stoðþjónusta skólans kynnt. Þar mæta nemendur m.a. í almenna fyrirlestra með öðrum nýnemum um starfsemi háskóla, gagnrýna hugsun og siðferði. Í aðferðafræði verður farið yfir námstækni, öflun heimilda og gæði þeirra og notkun, og uppsetningu og frágang á rituðum texta. Stuðst verður við APA kerfið sem verður haft til viðmiðunar við verkefnaskil í þessum áfanga sem og öðrum áföngum námsins. (2) Staða fiskeldis - Farið verður yfir þær tegundir sem eru í eldi hérlendis, magntölur, verðmæti, framleiðsluaðferðir og sett í samhengi við framleiðslu í öðrum löndum og framleiðslu annara matvæla. Fjallað verður um helstu fiskeldisframleiðsluþjóðir heims og þær tegundir sem eru ráðandi í eldi. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Ein staðarlota er í upphafi námskeiðs þar sem nemar mæta á nýnemadaga, læra um aðferðafræði og fara í vettvangsferð í fiskeldisstöðvar á Norðurlandi, þar sem nemendur kynna sér starfsemi þeirra undir handleiðslu kennara. Í ferðinni verður mest áhersla lögð á framleiðsluhætti, framleiðslutölur, markaði fyrir afurðir, uppbyggingu eldiskerfa, eldisaðferðir og eldisferla. Að öðru leyti, samanstendur námið af fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu sem felur í sér stór og smá verkefni sem nemendur leysa einir sér eða í hópum.

X

Umhverfismál fiskeldis (UMF1706190)

Almennt markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grunnþekkingu og skilning á helstu umhverfismálum er tengjast fiskeldi á heimsvísu og á Íslandi, sem og á helstu lögum og reglum er tengjast þessum málum hérlendis. Fjallað er um helstu umhverfisvandamál í lagareldi og tengsl lagareldis við hina villtu náttúru. Fluttur er almennur inngangur um umhverfisfræði og því álagi á náttúrulegar auðlindir sem maðurinn veldur. Rætt er um mengunarefni í eldisvatni, aðferðir notaðar við hreinsun slíkra efna og áhrif mengunnar á náttúruleg vistkerfi og ólíka viðtaka. Fjallað er um röskun búsvæða í tengslum við fiskeldi, áhrif fiskeldis á nýtingu náttúrulegra stofna, samkeppni eldisfiska við villta fiska og erfðablöndun þeirra á milli. Þá er fjallað um tilraunir til fjöleldis og lífrænt fiskeldi. Kynntar eru helstu stofnanir sem koma að leyfisveitingum í tengslum við fiskeldi og gefin yfirsýn á stöðu umhverfismála í fiskeldi hérlendis. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Fyrsti hluti námskeiðsins felst í fyrirlestrum og vinnu heimaverkefna. Í annarri viku er staðarlota, þar sem nemendur gera verklega æfingu, undirbúa og halda pallborðsumræðu byggðan á vísindagrein og taka þátt í umræðum. Í þriðju viku námskeiðsins eru verkefnaskil og lokapróf.

X

Fiskur og vatn (FOV1206200)

Verður uppfært.

Í námskeiðinu verður fjallað um eldisumhverfi og áhrif eldisumhverfisinins á fiska. Leitast verður við að tengja vatnsfræði og líffræði fisksins. Farið verður yfir byggingareiningar lífs, frumeindir og sameindir, frumur, flutningu um frumuhimnur, uppbyggingu fisks, útlit og líffæraskipan. Fjallað um hreyfingu fiska, flotstjórn og hegðun, öndun fiska og súrefnisupptöku. Flutningur á súrefni og koldíoxíði og útskilnað á koldíoxíði og ammóníaki. Einnig verður fjallað um vatnsbúskap fiska og seltuþol. Farið verður yfir frumeindir og sameindir, helstu eðliseiginleika vatns og áhrif þeirra á vöxt og þrif fiska. Farið verður yfir uppleyst efni í vatni, seltu, lofttegundir, sýrustig og eðlisþyngd vatns, og einfalda útreikninga þar að lútandi vatnsgæði og helstu þætti sem ráða vatnsgæðum í fiskeldi. Sérstök áhersla verður lögð á súrefni, koldíoxíð og ammóníak. Kynntar verða helstu aðferðir við að stýra vatnsgæðum í fiskeldi. Samhliða umfjöllun um vatnsgæði verður fjallað um áhrif vatnsgæða á fiska. Farið verður yfir öndun, súrefnisupptöku og útskilnað á koldíoxíði og nitursamböndum. Einnig verður fjallað um áhrif umhverfis á vatns og seltubúskap fiska. Í tengslum við vatnsþörf í fiskeldi verður fjallað um vatnstöku, hönnun einfaldra vatnslagna, val á dælum og stjórnun hita og seltu í eldisvatni. Námskeiðið verður kennt á þremur vikum. Fyrsta vikan verður kennd í fjarnámi. Þá verða lagðir fram á vefsvæði námskeiðsins flestir fyrirlestrar auk þess sem nemendur leysa heimaverkefni. Önnur vikan verður staðbundin lota á Hólum með verklegum æfingum, umræðutímum og verkefnavinnu. Síðasta vikan verður kennd í fjarnámi þar sem seinust fyrirlestrarnir verða lagðir fyrir og nemendur skila heimaverkefnum.

X

Áframeldi (ÁFR1808120)

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum mikilvægi líffræðilegra og tæknilegra atriða við eldi á fiski frá seiðastigi að matfiskstærð. Í námskeiðinu verður fjallað um eldi á laxfiskum og helstu sjávarfiskum sem virðist álitlegt að ala á Íslandi. Umfjöllun um mikilvæga þætti sem hafa áhrif á framleiðslu og rekstur. Kennt í 4 vikur Kennslan byggist einkum upp af fyrirlestrum og sýnidæmum. Nemendur vinna framleiðsluáætlanir og vaxtarúrteikninga. Gera áætlanir um fóðurþörf, fóðurkostnað og aðra kostnaðartengda þætti sem tengjast fiskinum og rekstri fiskeldisstöðvar eftir því sem við á. Útreikningar á vatnsþörf- flutningi vatns inn og út úr eldisrými, strumsetning í keri, viðhald vatnsgæða og rýmisþörf

X

Sjúkdómar og hreinlæti (SOH1604200)

Í upphafi námskeiðs er farið yfir helstu hugtök tengt sjúkdómafræði.
Stutt kynning er um fiskeldi á heimsvísu ásamt sögulegum dæmum um sjúkdóma sem höfðu miklar afleiðingar.
Farið er yfir ýmsar aðferðir sem notaðar eru gegn fisksjúkdómum í fiskeldisstöðvum. Að lokum er farið yfir helstu bakteríusjúkdóma sem þekktir eru, sem og sjúkdóma sem stafa af veirum, sveppum og sníkjudýrum í fiskeldi.

X

Klak og hrogn (KOH1306190)

Markmið námskeiðsins er að nemandinn öðlist skilning á æxlunarfræði fiska, og hvernig þekking á henni  nýtist í fiskeldi, m.t.t. kynþroska, hrygningar, umhirðu hrogna og eldis fiska, hvort sem um ferskvatns- eða sjávareldi er að ræða. Áhersla er á þroskalíffræði laxfiska. 

Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur. Í fyrstu tveimur vikunum eru fyrirlestrar, kannanir og umræður tengdar þeim. Staðbundna lotan er yfirleitt í annari viku. Í henni takast nemendur við fjölbreytt verkefni, t.d. söfnun kynfrumna fiska og skoðun á aðferðum við kynbætur fiska. Einnig skoða nemendur fyrstu stig í þroska fiska og reikna út nytsamleg dæmi.

Í þriðju og loka viku námskeiðsns er lögð sérstök áhersla á æxlunarlíffræði mikilvægra eldistegunda bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Einnig munum við ræða kynbætur í fiskeldi.

X

Seiði og frumfóðrun (SOF1406120)

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fræðilegan og tæknilegan bakgrunn við eldi og meðhöndlun fisklirfa og smáseiða nokkura tegunda fiska í fersku og söltu vatni. Námskeiðið kennt í 3 vikur. Miðlun námsefnisins fer einkum fram í fyrirlestrum , þar sem dregin eru upp mikilvægustu efnisatriði. Gert er ráð fyrir verklegum æfingum/sýnikennslu þar sem nemendur kynna sér frumfóðrun laxfiska og sjávarfiska. Nemendur kynna sér ræktun á lifandi fóðri fyrir smáfiska. Skilaverkefni um efni námskeiðsins. Umræður.

X

Eldisbúnaður (EBÚ1906180)

Megin inntak námskeiðsins fjallar um hvernig útbúa má og viðhalda góðum eldisaðstæðum fyrir eldi tegunda, einkum við eldi á landi.

Í námskeiðinu verður fjallað ýmsa þætti sem tengjast hönnun fiskeldisstöðva og rekstri þeirra, hvernig hafa má áhrif á nýtingu og hámarka afköst og virkni. Fjallað verður sérstaklega um vatnsöflun, vatnsflutning og vatnsnýtingu bæði í gegnumrennslis- og endurnýtingarkerfum. Hönnun eldisbúnaðar og lögmál sem gilda um virkni hans. Nemendur fá yfirsýn yfir samsetningu, virkni og rekstur endurnýtingarkerfa í fiskeldi og þjálfun í mælingum og stjórnun vatnsgæða.

Byggt verður ofan á þekkingu úr námskeiðunum Fiskur og vatn, frumfóðrun og seiðaeldi og áframeldi en kafað dýpra í námsefnið.

Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái innsýn í starfsemi og notkun ýmiskonar tæknibúnaðar sem notaður er í fiskeldi. Kennd verður uppsetning og viðhald lagnakerfa í fiskeldisstöðvum. Fjallað er um virkni og notkun á ýmsum búnaði sem tengist viðhaldi á vatnsgæðum og eftirliti með þeim.

Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur. Kennsla er í formi fyrirlestra, verkefna og verklegra æfinga. Í fjórðu viku námskeiðsins mæta nemdur í staðbundna lotu og þar fá nemendur að æfa sig í stýring endurnýtingakerfa og mælingum á vatnsgæðum.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Aðalbygging háskóla íslands á hólum